Boðar stofnun Samtaka atvinnulífs í Grindavík
Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis ehf., boðaði stofnun Samtaka atvinnulífs í Grindavík á íbúafundi um endurkaupaáætlun Þórkötlu í á miðvikudagskvöld. Markmiðið væri að efla samstöðu um endurreisn bæjarins og standa með Járngerði og bæjarstjórn í þeirri vinnu.
Pétur hvatti alla sem stæðu í einhvers konar atvinnurekstri til að taka þátt í nýju samtökunum. Hann sagði mikilvægt að atvinnulífið léti til sín taka og kæmi sjónarmiðum sínum skýrt á framfæri.
Hann nefndi jafnframt að leita þyrfti samstarfs við samtök sveitarfélaga og fyrirtækja á Suðurnesjum og kalla þingmenn Suðurkjördæmis að borðinu.
Boðunin kom undir lok fundar þar sem Pétur hafði gagnrýnt endurkaupaáætlun Þórkötlu harðlega. Hann taldi nauðsynlegt að gera fjölskyldum kleift að snúa heim og endurreisa virkt samfélag áður en megináhersla yrði lögð á sölu íbúðarhúsnæðis.
Að hans mati væru hagsmunir atvinnulífs, íbúa og fasteignaeigenda samofnir. Öflugt skóla-, íþrótta- og félagsstarf myndi styrkja bæinn og bæta forsendur áframhaldandi uppbyggingar.
Pétur hvatti fundargesti til að sameinast um að koma afstöðu Grindvíkinga á framfæri. Fólkið sjálft þyrfti að hafa áhrif á það hvernig næstu skref yrðu tekin.
Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Þórkötlu, fagnaði áformunum um samtökin og lýsti áhuga á að eiga samtal við hópinn.





