Fréttir

Undirbúa afþreyingar- og ferðamannasvæði við Efrahóp
Hraun rennur við Efrahóp í eldsumbrotum við Grindavík. VF/Ísak Atli Finnbogason
Fimmtudagur 12. nóvember 2026 kl. 05:41

Undirbúa afþreyingar- og ferðamannasvæði við Efrahóp

Bæjarstjórn Grindavíkur hefur samþykkt samhljóða að hefja vinnu við breytingu á aðalskipulagi vegna fyrirhugaðs afþreyingar- og ferðamannasvæðis við Efrahóp, norðan þéttbýlisins. Áformin fela meðal annars í sér göngustíg, göngubrú og bílastæði norðan við Norðurhóp, ásamt aðstöðu til útivistar og fræðslu.

Fyrirhugaðar skipulagsbreytingar ná til hluta íbúðarsvæðanna ÍB8 og ÍB11, þar sem til stendur að breyta landnotkun í afþreyingar- og ferðamannasvæði. Nánari afmörkun svæðisins og útfærsla uppbyggingarinnar verða ákveðnar við skipulagsvinnuna.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Skipulags- og umhverfissviði hefur verið falið að hefja vinnu við breytinguna á Aðalskipulagi Grindavíkur 2018–2032. Innviðanefnd hefur jafnframt samþykkt að hefja vinnu við breytingu á gildandi deiliskipulagi vegna áformanna. Sú vinna tekur til svæðisins ofan Hópsbrautar.


HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100