Börnin eiga ekki að þurfa að bíða lengur
Opið bréf til bæjarstjórnar Reykjanesbæjar
Við undirrituð viljum koma á framfæri alvarlegum áhyggjum okkar af stöðu skólamála og framkvæmdum við Myllubakkaskóla. Við teljum mikilvægt að bæjarstjórn geri sér grein fyrir þeirri stöðu sem nemendur og starfsfólk hafa búið við undanfarin ár og þeim afleiðingum sem sífelldar tafir á framkvæmdum hafa fyrir okkur.
Undanfarin ár hefur skólastarfið raskast mikið og kennsla farið fram við aðstæður sem eru langt frá því að vera viðunandi. Kennslustofur hafa verið staðsettar víðs vegar um bæinn og starfsfólk og nemendur hafa þurft að aðlagast síbreytilegum aðstæðum. Við erum loksins komin undir eitt þak ef frá er talin íþróttakennslan. Það er vissulega stór áfangi, en húsnæðið er enn þröngt og margt óklárað.
Hvað þýðir þetta fyrir börnin okkar?
Nemendur sem hafa lokið rúmlega helmingi grunnskólagöngu sinnar í Myllubakkaskóla hafa aldrei fengið að upplifa hefðbundið skólastarf. Þau hafa þurft að stunda nám í þröngum rýmum og verkleg kennsla, sem er mikilvægur hluti námsins, hefur ekki verið í boði með viðundandi hætti fyrr en nú í haust. Nemendur hafa þurft að sækja íþróttakennslu á Sunnubraut og frístundastarf hefur þurft að fara fram á göngum skólans og á skólalóðinni sem hefur lítið upp á að bjóða. Þar er lítið um afþreyingu og möguleikar til leikja og hreyfingar af skornum skammti. Við þurfum að spyrja okkur hvort þetta sé sú aðstaða sem við viljum bjóða börnunum okkar upp á til leikja, hreyfingar og félagslegra samskipta.
Þetta eru ekki smávægileg óþægindi. Þetta eru börn sem hafa varið stórum hluta grunnskólagöngu sinnar við óviðunandi aðstæður og hafa ekki fengið þau tækifæri til náms og skólastarfs sem börn eiga að geta vænst og hafa rétt til.
Aðstaða og framkvæmdir – margt enn óklárað
Það hefur vissulega orðið jákvæð þróun og við fögnum þeim áföngum sem náðst hafa. Nýr og glæsilegur matsalur er kominn í gagnið en þó vantar enn fjármagn til að ljúka ýmsum þáttum þar, svo sem uppsetningu á skjávarpa og öðrum búnaði sem þarf til að nýta rýmið sem best.
Skólinn er enn ekki með starfandi bókasafn. Þar vantar bæði hillur og bækur og ekki var gert ráð fyrir fjármagni til þess í fjárhagsáætlun þessa árs. Bókasafn er ekki munaður heldur mikilvægur hluti af skólastarfi, lestrarmenningu og námsumhverfi barna.
Ein álma hefur verið steypt en ekki liggur fyrir fjármagn til að ljúka henni. Þá hefur ekki verið hafist handa við byggingu íþróttahúss og samkvæmt þeim áætlunum sem liggja fyrir er ekki gert ráð fyrir því næstu þrjú árin sem er með öllu óásættanlegt.
Íþróttakennarar skólans þurfa að deila íþróttasal með öðrum skóla og hefur það í för með sér mikla hávaðamengun og álag fyrir báða skóla. Nemendur þurfa jafnframt að fara á milli mannvirkja til að sækja íþróttatíma. Fyrir yngstu nemendurna getur ferðin tekið um 15 til 20 mínútur fram og til baka, tvisvar í viku í öllum veðrum. Sá tími skerðir bóklegt nám þeirra og kallar jafnframt á aukinn starfsmannafjölda til að fylgja börnunum.
Aðstaða starfsfólks er enn til bráðabirgða og hitastýring er ekki frágengin á öllum svæðum. Þá eru kennslustofur nýttar undir margvíslega starfsemi og víða er þröngt um nemendur og starfsfólk. Skólinn er kominn undir eitt þak en aðstaðan er enn ekki fullbúin til að sinna öllu því starfi sem fer fram innan veggja hans.
Afleiðingarnar bitna líka á starfsfólkinu
Ekki má gleyma mannauðnum. Álagið sem fylgir þessum aðstæðum hefur haft áhrif á starfsfólk, við höfum misst frá okkur starfsfólk í veikindi og til annarra starfa vegna álags og mygluvanda. Það er alvarlegt mál þegar skóli missir reynslumikið starfsfólk vegna aðstæðna sem hann ræður ekki sjálfur við. Það tekur tíma að byggja upp öflugt og stöðugt skólasamfélag á ný.
Það er ekki hægt að ætlast til þess að starfsfólk og nemendur haldi áfram að sýna endalausa aðlögunarhæfni og þolinmæði á meðan nauðsynlegum framkvæmdum er frestað.
Hvar liggja áherslur sveitarfélagsins?
Við skiljum að fjárhagur sveitarfélagsins setji ákveðnar skorður og að mörg verkefni séu mikilvæg. Hins vegar verðum við að spyrja hvort grunnskóli, aðbúnaður barna og starfsumhverfi starfsfólks þurfi ekki að vera í forgangi.
Þegar fjárskortur er notaður sem rök fyrir því að fresta og seinka framkvæmdum á sama tíma og fjármagni er ráðstafað í önnur verkefni, er eðlilegt að spurt sé hvernig forgangsröðun sveitarfélagsins endurspegli raunverulegar þarfir barna og starfsfólks Myllubakkaskóla.
Skólabyggingar eru ekki bara steypa, veggir og tæki. Þær eru umgjörð um nám, þroska, samskipti, vellíðan og framtíð barna okkar. Gott skólaumhverfi er ekki aukaatriði heldur ein af grunnforsendum þess að börn geti notið sín í námi og starfi.
Við köllum eftir skýrum svörum og aðgerðum frá bæjarstjórn
- Að framkvæmdum við skólann verði gefinn skýr forgangur í fjárhagsáætlunum sveitarfélagsins.
- Að lögð verði fram tímasett og raunhæf framkvæmdaáætlun um verklok á þeim áföngum sem enn standa eftir.
- Að áætlanir um byggingu íþróttahúss verði endurskoðaðar með það að markmiði að flýta henni og tryggja nemendum viðunandi íþróttaaðstöðu.
- Að tryggt verði fjármagn til að koma upp nauðsynlegum búnaði og bæta aðstöðu, þar á meðal bókasafni, matsal og starfsmannaaðstöðu.
- Að gripið verði til úrbóta á skólalóðinni svo hún geti þjónað nemendum skólans.
- Að tekið verði mið af áhrifum álagsins á starfsfólk og nemendur við alla ákvarðanatöku um framtíð skólans.
Við viljum sjá metnað í verki. Ekki óljós loforð eða draga framkvæmdir á langinn, heldur skýra stefnu, raunhæfa tímaáætlun og fjármuni til að framkvæma.
Börnin okkar hafa þegar beðið lengi. Þau hafa átt rétt á góðu skólaumhverfi allan þennan tíma, ekki bara þegar framkvæmdum lýkur. Starfsfólkið hefur sömuleiðis lagt mikið á sig við erfiðar aðstæður og á skilið vinnuumhverfi sem gerir því kleift að sinna starfi sínu af fagmennsku og öryggi. Við viljum að skólinn okkar verði staður þar sem börn fá að læra, leika sér, þroskast og njóta skólagöngunnar við góðar aðstæður. Það er ekki ósanngjörn krafa. Það er lágmarkskrafa.
Börnin okkar eiga ekki að þurfa að bíða lengur.
Virðingarfyllst,
starfsfólk Myllubakkaskóla, nemendur Myllubakkaskóla og foreldrar nemenda í Myllubakkaskóla.





