Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi
Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi

Aðsent

Hugaðu að heilsunni með Lions, Lyfju og HSS
Mánudagur 2. nóvember 2026 kl. 10:47

Hugaðu að heilsunni með Lions, Lyfju og HSS

Lionsklúbbarnir á Suðurnesjum bjóða upp á ókeypis blóðsykursmælingar í nóvember

Alþjóðlegi sykursýkisdagurinn er 14. nóvember ár hvert. Af því tilefni stendur Lions á Íslandi fyrir vitundarvakningarherferð sem snýr að sykursýki. Boðið er upp á ókeypis blóðsykursmælingar á landsvísu og á það líka við hér á Suðurnesjum. Lions á Suðurnesjum í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) bjóða upp á mælingar hér á svæðinu.

Mælingar á fjórum stöðum

Íbúar á Suðurnesjum hafa tækifæri til að láta mæla blóðsykur sinn á fjórum stöðum að þessu sinni.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Þann 6. nóvember er boðið upp á mælingar á þessum stöðum:

Í Krossmóa (Nettó) í Reykjanesbæ frá klukkan 13 til 16.

Í Kjörbúð Sandgerðis frá 13:30-14:30

Þriðjudaginn 10. nóvember verða mælingar í Álfagerði í Vogum frá klukkan 13-14:15 og svo sundmiðstöðinni í Vogum frá 14:45-16:00

Mikilvægi snemmbúinnar greiningar

Sykursýki er vaxandi heilsufarsvandamál um allan heim og snemmtæk greining getur skipt sköpum fyrir heilsu fólks til lengri tíma litið. Margir lifa með ógreinda sykursýki án þess að vera meðvitaðir um ástand sitt og því er mikilvægt að fólk nýti sér tækifæri eins og þetta til að koma í mælingu.

Blóðsykursmælingar eru fljótlegar og sársaukalausar og niðurstöður fást samstundis. Ef óeðlilegar mælingar koma í ljós er viðkomandi bent á að leita til sinnar heilsugæslu fyrir frekari skoðun.

Allir velkomnir

Hvort sem þú hefur áhyggjur af heilsu þinni, ert í áhættuhópi eða vilt bara ganga úr skugga um að allt sé í lagi, þá eru hvattir til að mæta og nýta sér þessa þjónustu. Mælingarnar eru ókeypis og opnar öllum aldurshópum.

Lionsklúbbarnir á Suðurnesjum vona að sem flestir nýti sér þetta góða tækifæri til að láta athuga blóðsykurinn hjá sér. Með aukinni vitund og snemmbúinni greiningu getum við öll stuðlað að betri heilbrigði í samfélaginu okkar.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100