Aðsent

Þetta hefði alltaf átt að vera sjálfsagt
Föstudagur 23. október 2026 kl. 04:45

Þetta hefði alltaf átt að vera sjálfsagt

Eitt af því sem er mest gefandi við þátttöku í stjórnmálum eru tækifærin sem hún gefur til að eiga samtöl við íbúa kjördæmisins og almenning í landinu almennt. Ekki stórir og fjölmennir fundir eða umræða í þingsölum heldur samtöl við fólk á förnum vegi, í versluninni, sundlauginni eða yfir kaffibolla einhvers staðar. Það er í þessum samskiptum sem ég er reglulega minntur á hvað skiptir mestu máli í lífi fólks.

Hér í Reykjanesbæ hef ég hitt fólk sem þarf að velta fyrir sér hverri krónu. Fólk sem hefur kannski unnið langa starfsævi og lagt sitt af mörkum til samfélagsins en hefur samt fjárhagsáhyggjur um hver mánaðamót og hvernig það eigi að ná endum saman fyrir þau næstu. Ég hef rætt við fjölda fólks sem hefur misst starfsgetuna vegna veikinda eða slysa og þarf að treysta á almannatryggingar þar sem greiðslur hafa ekki alltaf fylgt almennri launaþróun í samfélaginu.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Sumt af þessu fólki kaus mig til Alþingis og treysti mér og Flokki fólksins þar með til að vinna að breytingum til batnaðar. Frá því að Flokkur fólksins hóf þátttöku í ríkisstjórn höfum við þingmenn og ráðherrar flokksins náð fram mikilvægum kjarabótum fyrir það fólk sem stendur höllustum fæti í þjóðfélaginu.

Um næstu áramót er komið að mikilvægum áfanga í þeim efnum. Frá og með 1. janúar hækka greiðslur almannatrygginga í fyrsta skipti samkvæmt þróun launavísitölu, eða um 7,3 prósent. Þetta baráttumál Flokks fólksins varð loks að lögum á síðasta þingi með stuðningi samstarfsflokka okkar í ríkisstjórn en mætti harðri andstöðu þingmanna Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Framsóknarflokksins.

Þetta hefði alltaf átt að vera sjálfsagt.

Það ætti auðvitað ekki að kosta margra ára baráttu að tryggja að eldra fólk, öryrkjar og fatlað fólk dragist ekki stöðugt aftur úr launaþróun annarra. Afkomuöryggi og mannsæmandi kjör eiga að vera sjálfsagður hluti af okkar samfélagi.

Hækkunin um næstu áramót er ekki einstök því lögin tryggja að greiðslur almannatrygginga taki framvegis mið af launaþróun launavísitölu. Það er ekki þar með sagt að baráttunni fyrir bættum kjörum og stöðu aldraðra og öryrkja sé lokið. Því fer fjarri. Flokkur fólksins og ríkisstjórnin eru hvergi hætt í því verkefni að jafna kjörin í landinu.

Á endanum snúast stjórnmál ekki um loforð heldur efndir og bætt kjör og aðstæður þeirra sem treystu okkur til góðra verka.

Sigurður Helgi Pálmason,

alþingismaður.

Bílakjarninn
Bílakjarninn