Öruggari Suðurnes endurnýjað til 2030
– heimilisofbeldi hefur minnkar en kynferðisofbeldi milli ungmenna stendur í stað
Helstu stofnanir, sveitarfélög og þjónustuaðilar á Suðurnesjum hafa endurnýjað samstarfið Öruggari Suðurnes til ársins 2030. Markmiðið er að efla samvinnu gegn ofbeldi og afbrotum og bæta þjónustu við íbúa og þolendur. Nýjar tölur sýna jákvæða þróun í nokkrum málaflokkum, meðal annars verulega fækkun unglinga sem hafa upplifað heimilisofbeldi. Á sama tíma vekur staða kynferðisofbeldis milli unglinga áhyggjur.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, sveitarfélögin fjögur á svæðinu, Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Suðurhlíð og Sýslumaðurinn hafa endurnýjað samstarfsyfirlýsingu Öruggari Suðurnes.
Samstarfið byggir á því að þessir aðilar vinni saman gegn ofbeldi og öðrum afbrotum með sameiginlegum markmiðum og aðgerðum sem taka mið af aðstæðum á Suðurnesjum. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum leiðir samstarfið og boðar til samráðsfunda.
Heimilisofbeldi meðal unglinga minnkar
Tölur úr Íslensku æskulýðsrannsókninni fyrir Suðurnes árin 2023 til 2026 sýna umtalsverða breytingu til hins betra þegar kemur að heimilisofbeldi.
Árið 2023 sögðust tæplega 17% unglinga í 8. til 10. bekk hafa orðið fyrir heimilisofbeldi eða orðið vitni að því. Árið 2026 var hlutfallið komið niður í um 12%.
Það jafngildir fækkun um rúman fjórðung og samkvæmt gögnunum er lækkunin meiri á Suðurnesjum en í öðrum landshlutum. Suðurnes voru áður yfir landsmeðaltali en eru nú nær því.
Mesta lækkunin hefur orðið meðal barna sem búa við þrengri fjárhag. Þrátt fyrir það eru þau enn rúmlega tvöfalt líklegri en önnur börn til að hafa upplifað heimilisofbeldi.
Kynferðisofbeldi fullorðinna minnkar
Einnig hefur dregið úr kynferðisofbeldi fullorðinna gagnvart ungmennum. Hlutfall þeirra sem greina frá slíku fór úr um 13% árið 2023 í tæp 9% árið 2026. Sambærileg þróun hefur átt sér stað annars staðar á landinu.
Önnur mynd blasir hins vegar við þegar litið er til kynferðisofbeldis milli unglinga.
Um 8% unglinga á Suðurnesjum segjast hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu annars unglings. Hlutfallið hefur ekki lækkað frá árinu 2023. Á sama tíma hefur það lækkað annars staðar á landinu og er því nú hærra á Suðurnesjum en á landsvísu.
Þetta er eitt þeirra verkefna sem samstarfsaðilar Öruggari Suðurnes þurfa áfram að takast á við.
Þriðjungur hefur lent í slagsmálum eða líkamsárás
Litlar breytingar hafa orðið þegar kemur að slagsmálum og líkamsárásum. Um þriðjungur nemenda í 6. til 10. bekk á Suðurnesjum hefur lent í slagsmálum eða orðið fyrir líkamsárás á síðasta ári. Hlutfallið er svipað og í öðrum landshlutum og hefur lítið breyst á undanförnum árum.
Sameiginleg framkvæmdaáætlun á hverjum vetri
Með endurnýjuðu samstarfi á að samræma betur þá umfangsmiklu forvarnavinnu sem þegar fer fram á Suðurnesjum og styrkja tengsl þeirra aðila sem koma að afbrota- og ofbeldisvörnum.
Áhersla verður meðal annars lögð á að auka öryggi íbúa og öryggistilfinningu þeirra, styrkja og gera núverandi forvarnastarf sýnilegra og þróa nýjar aðgerðir til að draga úr ofbeldi og bæta þjónustu við þolendur.
Jafnframt á að tengja vinnuna öðrum verkefnum í þágu almannaheilla á Suðurnesjum, meðal annars innleiðingu farsældar barna, lýðheilsuvísum og áætlunum sveitarfélaganna.
Samstarfsaðilar munu setja saman sameiginlega framkvæmdaáætlun í upphafi hvers vetrar og skuldbinda sig til að fylgja aðgerðum hennar eftir.
Nýja samstarfsyfirlýsingin tók gildi 7. október og gildir til loka kjörtímabils sveitarstjórna árið 2030. Stöðumat, markmið og framkvæmdaáætlun verða endurskoðuð árlega, eða fyrr verði verulegar breytingar á aðstæðum í samfélaginu.







