Coca-Cola á Íslandi og Slysavarnafélagið Landsbjörg halda áfram öflugu samstarfi
Coca-Cola á Íslandi og Slysavarnafélagið Landsbjörg hafa undirritað samning um áframhaldandi samstarf, hvers tilgangur er að efla menntun, þjálfun og hæfni björgunarsveitarfólks um allt land. Samstarfið hefur þegar skilað mikilvægum árangri en síðustu þjrú árin, hafa yfir 2.100 einstaklingar nýtt sér fræðslu og námskeið sem samstarfið hefur stutt við.
Samstarf félaganna byggir á sameiginlegri áherslu á öryggi, menntun og samfélagslega ábyrgð. Með stuðningi Coca-Cola á Íslandi hefur Landsbjörg getað eflt sérhæfða þjálfun og aukið aðgengi björgunarsveitarfólks að rafrænu námsefni, sem gerir sjálfboðaliðum kleift að sækja sér fræðslu óháð búsetu. Samstarfið tryggir einnig aðgengi unglinga innan unglingadeilda Slysavarnafélagsins Landsbjargar að fræðslu og þjálfun.
Fjárfesting í fólkinu sem stendur vaktina
„Það er okkur mikið ánægjuefni að halda áfram stuðningi okkar við Slysavarnafélagið Landsbjörgu. Starf björgunarsveitanna gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi og byggir á óeigingjörnu framlagi sjálfboðaliða um allt land. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá þann árangur sem samstarfið hefur þegar skilað, þar sem 6.300 einstaklingar hafa nýtt sér fræðslu og þjálfun sem verkefnið hefur stutt við. Við erum mjög stolt af því að leggja okkar af mörkum til að efla þekkingu, viðbragðsgetu og öryggi í samfélaginu. Fjárfesting í menntun og þjálfun er fjárfesting í fólkinu sem stendur vaktina þegar á reynir,“ segir Anna Regína Björnsdóttir, forstjóri Coca-Cola á Íslandi.
Aukið aðgengi að sérhæfðri þjálfun um allt land
Í samstarfinu hefur sérstök áhersla verið lögð á þróun sérhæfðra námskeiða á sviði aðgerðastjórnunar og björgunaraðgerða við krefjandi aðstæður. Jafnframt hefur verið unnið að því að efla rafræna fræðslu og tryggja að sjálfboðaliðar geti sótt námskeið hvar sem þeir eru staddir á landinu.
Þekkingin og færnin sem þátttakendur öðlast, nýtist ekki aðeins við björgunarstörf heldur einnig í daglegum störfum þeirra, meðal annars innan ferðaþjónustunnar sem og annarra atvinnugreina þar sem öryggi og viðbragðsgeta skipta höfuðmáli.
„Öflug þjálfun er ein af grunnforsendum þess að björgunarsveitir geti brugðist hratt og örugglega við þegar á reynir. Stuðningur Coca-Cola á Íslandi hefur gert okkur kleift að þróa framboð fræðsluefnis okkar og gera sérhæfða þjálfun aðgengilegri fyrir sjálfboðaliða um allt land. Það er afar ánægjulegt að sjá hversu margir hafa þegar nýtt sér þessi tækifæri og við hlökkum til að byggja áfram á þeim góða grunni sem lagður hefur verið,“ segir Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Samfélagsleg ábyrgð í verki
Samstarfið er hluti af áherslum Coca-Cola á Íslandi á samfélagslega ábyrgð, þar sem fyrirtækið leggur áherslu á að styðja við verkefni sem skapa varanlegan ávinning fyrir íslenskt samfélag.
Með áframhaldandi samstarfi vilja aðilar byggja á þeim árangri sem þegar hefur náðst, efla þjálfun björgunarsveitarfólks og stuðla að enn öflugra björgunarstarfi á Íslandi.






