Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi
Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi

Mannlíf

Karlar trufla stelpuhelgina
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 22. október 2026 kl. 15:04

Karlar trufla stelpuhelgina

Stelpuhelgi er leikrit haustsins hjá Leikfélagi Keflavíkur, gamanleikrit eftir Karen Schaeffer í upphaflegri þýðingu Harðar Sigurðssonar. Stelpuhelgi er fjörlegur farsi þar sem þrjár vinkonur, tvær fráskildar og ein að reyna að verða ólétt, og svo dóttir einnar þeirra, hittast í sumarbústað eina helgi, með fullt af hvítvíni og tilheyrandi fjöri.

Maggý (Sólrún Steinarsdóttir) og Dódó (Jenný Jónsdóttir) eru báðar nýfráskildar og stofnuðu bókaklúbb til að hitta nýtt fólk. Þær auglýsa eftir fleiri meðlimum. Aðeins ein sækir um, Karen (Soffía Huld Ævarsdóttir), og fær auðveldlega inngöngu.

Þær ætla sér að eiga góða stundir saman í bústaðnum, skála, skiptast á sögum, borða góðan mat og ræða næstu bók, auðvitað karlalausar. Sem sagt: góð uppskrift að góðri stelpuhelgi. En það fer á annan veg þegar hvítvínið flæðir of mikið og körlum og strákum er boðið á staðinn, sem var ekki hugmynd gestgjafans. Vetrarveður, eiturlyf og konusjúkir karlar koma inn í spilið. Eftir frekar rólega byrjun á leikritinu fyrstu tuttugu mínúturnar fer að færast fjör í leikinn. Óvæntir hlutir gerast eins og oft vill verða þegar karlpeningur hittir konur og það í bústað og úr verður hin besta skemmtun. Karlarnir Bubbi (Daði Freyr Þorgeirsson), Tómas (Jóhann Helgi Hilaríius Gíslason) og Stefán, sem er sonur Dódóar (Mikael Örn Hilmarsson), koma skemmtilega inn í rólegu stelpuhelgina, eða þannig.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Leikstjóri sýningarinnar er Gunnar Björn Guðmundsson og hefur hann leikstýrt Stelpuhelgi fyrir fleiri aðila.

Á sviðinu má sjá nokkra nýliða en líka vant fólk úr fyrri verkum Leikfélags Keflavíkur. Stelpuhelgi er skemmtileg. Eflaust eiga margir sögur og reynslu úr bústaðaferðum sem hafa endað alls konar. Því er tilvalið að skella sér í Frumleikhúsið og njóta fyndinnar og skemmtilegrar sýningar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn