Safnahelgi á Suðurnesjum sett í hlöðu á Kálfatjörn
Safnahelgi á Suðurnesjum var sett í hlöðunni Skjaldbreið á Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd í gær fimmtudag. Fjölmargir áhugaverðir viðburðir verða í boði á Safnahelgi á Suðurnesjum 17. og 18. október en einhverjir viðburðir verða á föstudag 16. október.
Björg Ásta Þórðardóttir, bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Vogum setti Safnahelgina með ávarpi þar sem hún sagði verkefnið skemmtilegt og samstarf um það meðal Suðurnesjamanna og sveitarfélaganna væri ánægjulegt og gott.
Við setningu Safnahelgar fluttu hjónin Þorvaldur Örn Árnason og Ragnheiður Jónsdóttir, Heiða, kona hans þulu um Geirfuglasker og sungu hana við lagið Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn eftir Sigvalda Kaldalóns.
Gestir við opnun Safnahelgar skoðuðu við það tækifæri skólasafnið Norðurkot en það er í aldargömlu skólahúsnæði í næsta húsi við hlöðuna. Í þessu litla húsi fór fram á sínum tíma grunnskólakennsla fyrir allt að nítján börn og kennarinn bjó í íbúð á efri hæð. Í Norðurkoti má sjá gömul leikföng, skóladót, húsgögn og fleira frá því í gamla daga. Það verður opið laugardag og sunnudag á Safnahelgi kl. 13.-16. Skólahúsið gamla og hlaðan eru í næsta nágrenni við Kálfatjarnarkirkju og golfvöllinn á Kálfatjörn. „Hér á Kálfatjörn kemur saman þrennt sem auðgar andann; trúin, hreyfingin og menningin,“ sagði Björg Ásta bæjarstjóri.

Björg Vogabæjarstjóri setti Safnahelgi á Suðurnesjum.

Skólahúsið gamla og hlaðan Skjalbreið.

Séð inn í gamla skólahúsið. Þarna sátu 19 nemendur við nám.







