Safnahelgi
Safnahelgi

Mannlíf

Safnahelgi á Suðurnesjum: Bókmenntapersónur í aðalhlutverki á kvisskvöldi í Stapasafni
Fimmtudagur 15. október 2026 kl. 04:12

Safnahelgi á Suðurnesjum: Bókmenntapersónur í aðalhlutverki á kvisskvöldi í Stapasafni

Hversu vel þekkir þú persónurnar sem hafa lifað, elskað, logið, leyst morðgátur og tekið misgóðar ákvarðanir á síðum bókmenntanna? Á skemmtilegu kvisskvöldi á föstudag kl. 20 í Stapasafni verður látið reyna á þekkingu þátttakenda á eftirminnilegum persónum úr bókmenntasögunni.

Þema kvöldsins er Aðalpersónur bókmenntanna og verða spurningarnar af ýmsum toga. Farið verður allt frá vígamönnum Íslendingasagnanna til snjallra spæjara, stormasamra elskhuga og þekktra persóna úr nútímabókmenntum.

Kvissið er ætlað jafnt víðlesnum bókaunnendum og þeim sem einfaldlega vilja eiga skemmtilega kvöldstund í góðum félagsskap.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Keppt verður í tveggja manna liðum og hefst leikurinn klukkan 20:00 í Stapasafni.

Vegleg verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu liðin og eru þau í boði KEF spa, Hljómahallar, Brons, GeoSilica og Langbest.

Þá verður sérstök bónusspurning í lok keppninnar sem gæti sett allt á annan endann og ráðið úrslitum um hvaða lið fer með sigur af hólmi.

Kvöldið er hluti af dagskrá Safnahelgar á Suðurnesjum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn