SAF
SAF

Fréttir

„Þarna þurfti að byrja algjörlega frá grunni“
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
miðvikudaginn 14. október 2026 kl. 05:15

„Þarna þurfti að byrja algjörlega frá grunni“

Þegar varnarliðið fór stóð eftir heilt hverfi án íbúa og starfsemi. Verkefnið snerist um miklu meira en að koma fasteignum í notkun. Það þurfti að skapa nýjan atvinnugrundvöll, opna fólki leiðir til menntunar og byggja upp samfélag. Kjartan Eiríksson, fyrsti framkvæmdastjóri KADECO, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, lítur yfir tuttugu ára þróun á Ásbrú og segir mörg stærstu verkefni svæðisins eiga rætur í þeirri vinnu sem unnin var í upphafi.

„Þetta er gríðarlega flókið þróunarverkefni,“ segir Kjartan þegar hann rifjar upp fyrstu skrefin í umbreytingu gamla varnarsvæðisins í borgaralegt samfélag.

Annars vegar hafi staðið eftir mikið magn af tómu húsnæði. Gæta hafi þurft að því að eignirnar færu ekki allar inn á fasteignamarkaðinn í einu og hefðu þar neikvæð áhrif. Hins vegar hafi samfélagslegi þátturinn verið ekki síður flókinn. Fólk hafði misst atvinnu sína og finna þurfti nýjan farveg fyrir þekkingu þess og reynslu.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Kjartan segir um 2.800 manns hafa búið á svæðinu áður en varnarliðið fór. Með brotthvarfinu hafi bæði íbúarnir og sú starfsemi sem samfélagið byggðist á horfið.

„Þarna þurfti að byrja algjörlega frá grunni.“

Til að lýsa umfangi verkefnisins nefnir hann samanburð við Grindavík. Það sé eitt að endurbyggja samfélag þar sem fyrirtæki og atvinnugrundvöllur geti snúið aftur, en annað að þurfa jafnframt að finna því nýja undirstöðu.

„Ef þú ættir að byggja Grindavík aftur upp mætti ekki vera neinn sjávarútvegur þar,“ segir hann og lýsir þannig þeirri áskorun að byggja upp Ásbrú eftir brotthvarf varnarliðsins.

Atvinna og menntun áttu að skapa eftirspurn

Í stað þess að byrja á húsnæðinu einu var ráðist í ítarlega greiningu á samkeppnisstöðu Íslands og svæðisins. Leitað var svara við því hvaða atvinnustarfsemi gæti haft raunverulegan hag af staðsetningu þar.

Kjartan segir hugsunina hafa verið að ný starfsemi skapaði eftirspurn eftir húsnæði og legði þannig grunn að samfélagi til framtíðar. Menntun var annar lykilþáttur þeirrar stefnu.

„Keilir er fyrsta þróunarverkefni Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar,“ segir hann.

Að baki stofnun Keilis hafi meðal annars verið þörfin fyrir að skapa ný tækifæri fyrir fólk sem hafði unnið hjá varnarliðinu. Margir hafi búið yfir verðmætri þekkingu og starfsreynslu án þess að hafa hefðbundnar prófgráður sem opnuðu þeim leið inn í háskólanám.

Háskólabrúin hafi orðið mikilvæg leið fyrir þennan hóp en einnig aðra sem vildu hefja nýjan kafla í lífinu. Kjartan segir fólk hafa getað byggt á reynslu sinni, farið í háskólanám og sótt sér ný starfstækifæri.

Samhliða hafi verið lögð áhersla á að skapa fjölbreytt störf, þar á meðal störf fyrir háskólamenntað fólk. Slík tækifæri yrðu að vera til staðar svo fjölbreytt samfélag gæti þróast á svæðinu til lengri tíma.

Gagnaverin komu ekki af sjálfu sér

Kjartan nefnir gagnaversiðnaðinn og líftæknifyrirtækið Algalíf sem dæmi um starfsemi sem grunnur var lagður að á fyrstu árum þróunarverkefnisins.

Mikil vinna hafi farið í að finna fyrirtæki, greina þarfir þeirra og sýna fram á hvernig staðsetning á svæðinu gæti skapað þeim meira virði en aðrir kostir. Það hafi síðan þurft að móta aðstöðu og fyrirkomulag sem hentaði starfseminni.

Verne hafi verið fyrsta stóra gagnaversverkefnið sem komið var á fót á svæðinu. Kjartan segir alls ekki hafa verið sjálfgefið að fyrirtækið veldi Ísland.

„Það var ekkert sjálfgefið í fyrsta lagi að þeir kæmu hingað eða myndu byggja upp á Íslandi yfirhöfuð.“

Hann telur að kaup fyrirtækisins á húsnæði hafi skipt máli fyrir framhaldið. Verkefnið hafi síðar þurft að takast á við fjármálahrunið, eldgos og aðrar áskoranir. Hefði það enn verið á undirbúningsstigi þegar þær dundu yfir væri óvíst að það hefði orðið að veruleika.

Svipuð hugsun hafi legið að baki því að laða Algalíf að svæðinu. Horft hafi verið til nýrrar atvinnustarfsemi sem nýtti kosti staðsetningarinnar og skapaði jafnframt störf fyrir menntað fólk.

Kjartan segir árangurinn byggjast á því að raunveruleg rök séu fyrir staðarvalinu. Trúi fyrirtæki því að þau séu betur sett á svæðinu, og innistæða sé fyrir því, aukist líkurnar á að starfsemin nái að festa rætur.

Staðfesta og þolinmæði skiptu sköpum

Þegar Kjartan er spurður hvernig tekist hafi að umbreyta gömlu herstöðinni segir hann niðurstöðuna að sínu mati vera góða.

Hann rifjar upp samskipti við fulltrúa bandaríska sendiráðsins sem hafi lýst verkefninu sem einu af betri dæmum um umbreytingu herstöðvar sem Bandaríkjamenn hefðu yfirgefið.

Sjálfur leggur hann áherslu á að skoða árangurinn í samhengi við stærð íslenska hagkerfisins og samfélagsins á Suðurnesjum. Verkefnin hafi verið stór á þeim mælikvarða og kallað á mikla vinnu.

„Það gerðist ekkert af sjálfu sér.“

Frá fyrstu viðræðum við áhugasamt fyrirtæki og þar til endanleg ákvörðun væri tekin gætu liðið mörg ár. Jafnvel undirritun samninga þýddi ekki að framkvæmdir hæfust strax. Þess vegna hafi staðfesta og þolinmæði verið lykilatriði.

Hann segir þó ekki allt hafa verið fullkomið. Eftir á megi finna ákvarðanir sem hefði verið hægt að taka öðruvísi. Mikið framboð af ódýru húsnæði og þrýstingur á að nýta það hafi skapað flókna stöðu.

Að hans mati hafi besta leiðin verið að skapa markvisst eftirspurn meðal þeirra hópa sem gætu lagt grunn að samfélaginu til framtíðar.

Mikilvægt að fá líf á svæðið

Kjartan segir verkefnið hafa heillað sig frá upphafi. Hann hafði áður komið að samningum um viðhald eignanna og í námi sínu unnið með hugmyndir um hvernig nýta mætti flugvöllinn og tengda innviði til að skapa ný tækifæri.

Hann hafi því komið að starfinu með mótaðar hugmyndir, þótt áskorunin væri mikil. Fjármálahrunið hafi síðan gert verkefnið enn erfiðara þegar fasteignamarkaðurinn stöðvaðist.

Þá hafi þurft að finna leiðir til að halda uppbyggingunni áfram þótt lítið væri hægt að selja af eignum.

„Það var svo mikilvægt hjá okkur líka að fá líf inn á svæðið eins fljótt og kostur var.“

Kjartan segir um 300 fjölskyldur hafa flutt á svæðið strax sumarið eftir að starfið hófst. Það hafi verið mikilvægur áfangi, en áfram hafi þurft að laða að bæði íbúa og fyrirtæki.

Tengslin við Ásbrú eru enn sterk

Kjartan tengist enn uppbyggingu og þjónustu á Ásbrú, meðal annars með rekstri mathallar. Hann segir hana vera viðbót við þjónustuna fyrir íbúa hverfisins og Suðurnesjamenn almennt.

Jafnframt vinnur hann að stóru fasteigna- og atvinnuþróunarverkefni í byggingum sem áttu að hýsa álver í Helguvík/Bergvík þar sem beitt er sömu nálgun og mótuð var á fyrstu árum KADECO: að finna nýja atvinnustarfsemi sem getur haft hag af því að koma til Íslands.

Hann vonast til að hægt verði að kynna ný alþjóðleg verkefni sem eru að koma sér þar fyrir fljótlega og telur að það geti haft veruleg efnahagsleg áhrif til lengri tíma, ekki síður en hin stóru verkefnin á Ásbrú.

Bílakjarninn
Bílakjarninn