Pöntun á einni gröfu varð að blómlegum rekstri á Ásbrú
Þegar bóndi bað Bóas Eðvaldsson að útvega sér gröfu grunaði hann ekki að sú fyrirspurn yrði upphafið að nýjum kafla í rekstrinum. Rúmum þremur árum síðar selur Elfoss vinnuvélar um allt land og hefur komið sér fyrir á Ásbrú, þar sem gömul hús varnarliðsins hafa fengið nýtt hlutverk. Bóas segir að gott athafnarými, greiðar samgöngur og jákvæðar móttökur heimamanna hafi ráðið miklu um að fyrirtækið festi þar rætur.
Bóas Eðvaldsson hafði fengist við ýmislegt í innflutningi, meðal annars nýja og notaða vörubíla, vinnuvélar, hjólhýsi og húsbíla, þegar bóndi hafði samband og spurði hvort hann gæti útvegað sér gröfu. Fyrirspurnin virtist í fyrstu ekki boða neinar stórar breytingar á rekstrinum, en þegar Bóas fór að kanna markaðinn sá hann fljótt að verð á notuðum vinnuvélum var hátt og fór að leita annarra leiða.
Við þá leit rakst hann á kínverska vinnuvélaframleiðandann SANY, sem þá var lítt þekktur hér á landi, þótt fyrirtækið væri þegar einn af stærstu vinnuvélaframleiðendum heims. Hann ákvað að láta reyna á viðskiptin og niðurstaðan kom honum á óvart.
„Ég seldi honum eina nýja SANY-gröfu á svona um það bil sama verði og notaða vél sem ég gat flutt erlendis frá.“
Þessi eina vél varð upphafið að mun stærri þætti í starfsemi Elfoss. Fyrirspurnum fjölgaði, fleiri vélar voru fluttar inn og smám saman breikkaði úrvalið. Í dag nær það frá litlum gröfum upp í stórar vinnuvélar og krana, auk skotbómulyftara, lyftara og ýmissa rafknúinna tækja. Fyrsti rafknúni SANY-dráttarbíll fyrirtækisins er væntanlegur á næstu dögum.
Tæplega 300 skráningarskyld tæki
„Fyrstu vélarnar komu til landsins í byrjun ágúst 2023 og síðan höfum við flutt inn tæplega 300 skráningarskyld tæki á rúmum þremur árum. Það hefur verið ánægjulegt að sjá starfsemina vaxa og árið 2026 er þegar orðið langbesta árið okkar. Það má fyrst og fremst þakka okkar góðu og skynsömu viðskiptavinum sem hafa sýnt okkur traust og kunnað að meta tækin og þjónustuna.“
Bóas segir að á þessum tíma hafi orðið greinileg breyting á því hvernig íslenskir kaupendur líta á SANY.
„Núna koma menn bara og kaupa. Þeir eru búnir að sjá, heyra af og/eða prófa tækin og þekkja einhvern sem er búinn að kaupa. Það er mjög gott fyrir mig sem sölumann. Ein setning sem ég heyri líka oft frá tilvonandi viðskiptavinum þegar þeir koma og prófa er: „Kemur virkilega á óvart.““
Hann segir reynsluna undanfarin ár hafa styrkt trú sína á bæði tækin og framleiðandann.
„Eftir þennan tíma get ég sagt að SANY-tækin séu traust og góð, rétt eins og framleiðandinn sjálfur. Tækin halda líka áfram að batna. Á gröfunum er fimm ára ábyrgð samkvæmt ábyrgðarskilmálum SANY.“
Þess má geta að hér á landi er enn í fullu fjöri 23 tonna SANY-beltagrafa sem var flutt inn árið 2007, rétt fyrir hrun. Hún hefur því verið hér á landi í um 19 ár.

Vöxtur kallað á meira húsnæði
Vöxturinn kallaði fljótlega á meira húsnæði og ekki síður rúmt athafnasvæði. Bóas er frá Egilsstöðum og hafði einnig verið með starfsemi fyrir austan, en þegar hann fór að leita að hentugum stað á suðvesturhorninu skiptu flutningsleiðir til landsins miklu. Keflavík hafði lengi verið ofarlega í huga hans og þar á hann bæði ættingja og önnur tengsl.
Áður en Ásbrú varð fyrir valinu skoðaði hann meðal annars iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði. Þar varð honum hins vegar fljótt ljóst að hefðbundið iðnaðarsvæði hentaði illa starfsemi þar sem stórar vinnuvélar og flutningabílar þurfa að komast greiðlega að.
„Þegar maður gat ekki lagt bílnum fyrir utan iðnaðarhúsnæðið sá ég mína sæng upp reidda. Hér er nóg pláss enda byggt af bandaríska hernum.“
Á Ásbrú fann Bóas það rými sem starfsemin þurfti. Þar skipti ekki aðeins máli að geta komið vélunum fyrir heldur einnig að stórir bílar ættu auðvelt með að athafna sig og að möguleikar væru á frekari uppbyggingu. Hann segir þó að annað hafi ekki síður haft áhrif á ákvörðunina.
„Það er gott fólk hérna í Keflavík, jákvætt, og það er vel tekið á móti manni. Hér koma menn og hrósa manni fyrir fyrirtækið. Þeir hafa skilning á því að það þurfi fyrirtæki.“
Saga Elfoss fellur vel að þeirri breytingu sem orðið hefur á Ásbrú frá því að varnarliðið fór. Hús sem áður gegndu hlutverki í starfsemi hersins hafa smám saman verið tekin undir nýja atvinnustarfsemi og í húsnæði Elfoss eru ummerki fortíðarinnar enn sýnileg. Bóas segir að þar sem fyrirtækið starfar nú hafi áður verið tölvubúnaður hersins og öryggisgæsla með vopnuðum mönnum. Í dag eru þar vinnuvélar sem verið er að undirbúa fyrir verkefni víðs vegar um landið.

Heldur áfram að stækka
Starfsemin hefur haldið áfram að vaxa og Elfoss keypti í nóvember 2025 1.880 fermetra húsnæði við hliðina, með góðum bílastæðum allt í kring. Þar stendur yfir vinna við að laga að nýjum þörfum. Fjarlægðar voru innréttingar, settar stærri hurðir og rýmin gerð þannig úr garði að hægt sé að koma þar fyrir vélum og búnaði. Hluti húsnæðisins er leigður öðrum fyrirtækjum en annað verður nýtt undir starfsemi Elfoss. Sérstaklega skiptir máli að geta geymt rafmagnstæki, lyftur og annað innandyra yfir vetrartímann.
Þótt vinnuvél geti virst tilbúin til notkunar þegar hún kemur til landsins segir Bóas að töluverð vinna geti verið eftir áður en hún fer til kaupandans. Kröfur hafa breyst og búnaðurinn orðið sífellt flóknari. Tiltrótatorar, gripklær, fleygar og GPS-graftarkerfi, ljós, smurkerfi, Oilquick-búnaður þar sem menn þurfa ekki út úr vélinni til að setja vökvafleyg á bara sem dæmi ppl er meðal þess sem margir kaupendur vilja fá á vélarnar.
„Þetta er orðið flóknara en þegar ég og þú vorum yngri. Þá var bara skófla og þótti gott“
Elfoss hefur frá upphafi lagt áherslu á að eiga vélar á lager. Bóas segir að frá því að grafa er pöntuð þar til hún er komin til landsins geti liðið að minnsta kosti fjórir mánuðir, en verktaki sem fær verkefni vill sjaldnast bíða svo lengi eftir vélinni. Því þurfi að reyna að sjá eftirspurnina fyrir og eiga tæki tiltæk þegar kaupendur þurfa á þeim að halda.
Stundum ganga sendingarnar hratt út. Bóas nefnir sem dæmi nýlega sendingu sem kom með þrettán gröfum og átta skotbómulyfturum sem hafi farið fljótt til viðskiptavina. Samhliða sölunni rekur Elfoss tækjaleigu (Leiguvélar.is) og segir hann næg verkefni vera fyrir vélarnar.
Rafmagnstækjum fjölgar
Rafmagnstæki eru einnig orðin stærri hluti af framboðinu. Þar nefnir Bóas meðal annars rafmagnsgröfur, lyftara, vörubíla og námutrukka og segir íslenska viðskiptavini þegar hafa tekið slík tæki í notkun. Hann leggur þó áherslu á að rafmagn henti ekki endilega öllum verkefnum. Kostirnir séu mestir þar sem tækin vinna á afmörkuðu svæði, stutt er í hleðslu og hægt er að nýta lægri orkukostnað.
„Ég er svo sem ekki að halda því fram að rafmagnstæki henti í allt, en þau eru góður kostur þar sem það á við og geta sparað mikið í rekstrarkostnaði.“
Fjórir starfa hjá Elfoss að sögn Bóasar. Sjálfur sér hann um söluna ásamt pöntunum og ýmiss konar umsýslu og segir mikilvægt að láta yfirbygginguna ekki vaxa hraðar en starfsemina sjálfa. Hann segir fyrirtækið vera með gott starfsfólk, en ljóst sé að bæta þurfi við fólki þar sem álagið sé mikið.
„Við erum að reyna að halda yfirbyggingunni í lágmarki en við þurfum náttúrulega að veita þjónustu.“
Byggt upp skref fyrir skref
Bóas leggur jafnframt áherslu á að eigendur Elfoss séu þrír og uppbyggingin sé sameiginlegt verk þeirra.
„Þetta hefði ekki verið hægt án meðeigenda minna. Þeir eru miklir prinsippmenn sem leggja áherslu á heiðarleika, að standa við sitt og að hlutirnir séu gerðir almennilega. Ég er afar þakklátur fyrir að hafa þá með mér í þessu.“
Þegar horft er yfir starfsemina á Ásbrú í dag er langt frá fyrstu fyrirspurn bóndans um eina gröfu. Bóas segir þó að vöxturinn hafi ekki orðið samkvæmt fyrir fram gerðri áætlun. Reksturinn hafi fremur þróast með því að bregðast við verkefnum þegar þau komu upp, kanna nýja möguleika og láta á þá reyna.
„Við höfum byggt fyrirtækið upp skref fyrir skref og gripið tækifærin þegar þau hafa komið.“
Það hugarfar virðist hafa fylgt fyrirtækinu frá upphafi vinnuvélasölunnar. Ein beiðni leiddi til fyrstu gröfunnar, hún leiddi til fleiri viðskipta og eftir því sem starfsemin óx þurfti meira húsnæði, stærra svæði og fleiri tæki. Á Ásbrú fann Elfoss svigrúmið til þess.
Fengið góð viðbrögð á Ásbrú
Sjálfur segist hann hafa fundið fyrir góðum vilja frá því fyrirtækið kom á Ásbrú.
„Við erum bara þakklátir. Við höfum fengið svakalega góð viðbrögð.“
Og þegar haustlægðirnar ganga yfir Reykjanesið er að minnsta kosti eitt sem veldur honum minni áhyggjum en áður. Eftir árin í innflutningi hjólhýsa og húsbíla er lagerinn nú heldur þyngri.
„Ég sef alveg rólegur með gröfurnar, þær fjúka ekki,“ segir Bóas og hlær.








