Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Viðskipti

Nettó lækkar verð á 1.100 vörum um land allt
Þriðjudagur 29. september 2026 kl. 06:45

Nettó lækkar verð á 1.100 vörum um land allt

 Nettó hefur lækkað verð um 2,2% á 1.100 vörum í öllum verslunum sínum og frystir verð á þeim til áramóta. Verðlækkunin nær til fjölmargra vinsælla vörumerkja, þar á meðal Änglamark, Iceland, Xtra, Coop, Dagab, Eldorado, Santa Maria, Maku, Systema, Home og allra vara sem eru merktar Nettó.   
Með verðlækkuninni vill Nettó verða við ákalli frá aðilum vinnumarkaðarins um að fyrirtæki og stjórnvöld sameinist í aðgerðum sem vinna gegn verðbólgunni. Nettó undirstrikar þá áherslu sína að bjóða samkeppnishæft verð og leggja sitt af mörkum til að styðja við íslensk heimili á tímum þar sem verðbólga hefur sett mark sitt á afkomu fjölskyldna í landinu.
 
Um leið skorar Nettó á birgja og framleiðendur landsins sem hafa boðað hækkanir á vöruverði að bregðast við og draga þær til baka.
 
„Okkur hjá Nettó þykir mikilvægt að taka þátt í þessu nauðsynlega átaki gegn verðbólgu og þess vegna höfum við nú þegar lækkað verð um 2,2% á 1.100 vörum í verslunum okkar. Með þessum aðgerðum viljum við leggja okkar lóð á vogarskálarnar til að stuðla að auknum stöðugleika, verja forsendur kjarasamninga og bæta kaupmátt fjölskyldna í landinu. Að ná verðbólgu niður er sameiginlegt markmið okkar allra. Til þess þurfa allir aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld að leggja sitt af mörkum. Nettó hvetur einnig birgja til að láta ekki sitt eftir liggja í þessu átaki og halda aftur að hækkunum,“ segir Vífill Ingimarsson, framkvæmdastjóri Nettó.
 
Verðlækkunin tekur til vara sem merktar eru Nettó og frystivara frá Iceland. Þar á meðal eru vörur sem vega þungt í matarkörfu fjölskyldunnar, svo sem kjúklingur, nautahakk, egg, frosnar kjötvörur, frosnir ávextir og grænmeti og frosnir tilbúnir réttir, auk bakkelsis úr bakaríum verslananna. Lækkunin nær einnig til vara Änglamark sem eru umhverfisvottaðar vörur, svo sem barnamatur, bleyjur og blautþurrkur sem barnafjölskyldur kaupa mikið af.
 
Einnig nær lækkunin til vörumerkjanna Xtra, Coop, Dagab, Eldorado, Santa Maria, Maku, Systema og Home. Um er að ræða fjölbreytt vöruúrval, svo sem kaffi, pasta, tacovörur, snyrtivörur, hunda- og kattamat, búsáhöld, kerti, kryddvörur, niðursuðuvörur og ýmsar frystivörur. Lækkunin mun því koma viðskiptavinum lágvöruverslunarinnar um allt land til góða.
 
Nettó telur mikilvægt að samfélagið allt sameinist um það markmið að ná verðbólgu niður til hagsbóta fyrir heimili og atvinnulíf í landinu.  
Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn
Bílakjarninn