Krónan frystir verð til að berjast gegn verðbólgunni
Krónan frystir verð á 647 vörum undir vörumerkjunum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Grön Balance og Gestus. Verðfrystingin tekur gildi 24. september og stendur til og með 31. desember 2026. Með aðgerðinni vill Krónan leggja sitt af mörkum til að lækka verðbólgu, auka stöðugleika og draga úr kostnaðarhækkunum á heimilin.
Vörurnar spanna fjölbreyttar og algengar vörur fyrir daglegt líf heimilanna eða allt frá kjúklingabringum, hakki, beikoni, brauði og kartöflum yfir í pasta, haframjöl og kaffi. Frystingin nær einnig til nauðsynjavara á borð við eldhúsrúllur, salernispappír, uppþvotta- og þvottaefni, hreinlætisvörur og gæludýrafóður. Margar þessara vara eru meðal ódýrustu valkostanna í sínum vöruflokki og verða vörurnar merktar með „Fryst verð“ á rafrænum hillumiðum inni í verslun.
„Þótt matvara sé ekki helsti drifkraftur verðbólgunnar um þessar mundir teljum við mikilvægt að allir leggi sitt af mörkum til að skapa aukinn stöðugleika og styðja við lækkun verðbólgu og vaxta. Við viljum sýna það í verki og höfum því ákveðið að frysta verð á um 650 vörum sem skipta heimilin raunverulegu máli,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.
Krónan greip til sambærilegrar aðgerðar árið 2022 þegar verð var fryst á 240 vörum undir vörumerkjum Krónunnar og First Price. Nú nær frystingin til um 650 vöruliða undir merkjunum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Grön Balance og Gestus.
„Við viljum gefa viðskiptavinum vissu um að verð þessara vara hækki ekki út árið. Ef kostnaður okkar hækkar á tímabilinu tökum við þá hækkun á okkur, og ef forsendur skapast til verðlækkana munum við skila þeim áfram til viðskiptavina,“ segir Guðrún.
Verðfrystingin tekur gildi 24. september og stendur til og með 31. desember 2026 og miðast við almennt söluverð varanna 23. september. Verð varanna mun því ekki hækka á tímabilinu, jafnvel þótt innkaupsverð, flutningskostnaður eða aðrir kostnaðarliðir hækki. Skapist hins vegar svigrúm til verðlækkana, til dæmis vegna lægra innkaupsverðs eða styrkingar krónunnar, verður þeim ávinningi skilað áfram til viðskiptavina.








