Framleiða íbúðir og skapa hundruð nýrra starfa
Sækja fram á þéttingarreitum og í Helguvík
Fasteigna- og þróunarfélagið Reykjanes Investment hefur haft mörg járn í eldinum á Suðurnesjum á undanförnum árum. Magnús Guðmundsson framkvæmdastjóri félagsins greindi frá örum vexti og viðamiklum áformum í pallborðsumræðum á Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar. Félagið hóf vegferð sína árið 2021 sem lítið teymi en hefur stækkað hratt síðan, en á síðustu fjórum árum hefur það framleitt um 100 íbúðir á þéttingarreitum í Keflavík, meðal annars við Hafnargötu þar sem áhersla er lögð á litríkan og fallegan byggingarstíl sem gefur bænum mikla andlitslyftingu.
Umfangsmikil íbúðabygging og gígantísk tækifæri í Helguvík
Fram undan eru frekari áfangar og stórefling íbúðabygginga, en félagið hefur fengið samþykkt skipulag fyrir 200 íbúðir í Grófinni og vinnur samhliða að breyttu skipulagi á Hafnargötu 56 til að mæta breyttu árferði og eftirspurn á markaði.
Samhliða íbúðauppbyggingu festi Reykjanes Investment nýverið kaup á svæði gamla kísilversins af Arion banka og vinnur nú náið með Reykjanesbæ og hafnarstjóra að þróun þess. Áhugi fyrirtækja á Helguvíkursvæðinu er gífurlegur, en Magnús sagði verkefnið vera langhlaup þar sem stefnan sitji skýr: Að gera Helguvík uppselda og skapa þar mörg hundruð ný störf. Magnús undirstrikaði að þótt félagið hafi byrjað smátt séu hugmyndir þess stórar og markmiðið að halda áfram að byggja upp fallegt og öflugt samfélag í Reykjanesbæ.
Í spilaranum hér að neðan er upptaka frá þinginu.








