Visitor
Visitor

Fréttir

Á þriðja tug stálfugla aftur í loftið
Svona var staðan á hádegi í dag, skömmu síðar var byrjað að ferja þær að flugstöðinni. VF/pket.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 23. september 2026 kl. 13:49

Á þriðja tug stálfugla aftur í loftið

Tuttugu og tvær brottfarir eru hjá Icelandair frá Keflavíkurflugvelli seinni partinn í dag, miðvikudag, sama dag og verkfalli flugvirkja var aflýst.

Um tugur flugvéla Icelandair voru komnar í „biðstöðu“ við stærsta fyrrverandi flugskýli Varnarliðsins, (885) á Keflavíkurflugvelli í upphafi verkfalls sem varði þó aðeins í hálfan sólarhring. Icelandair aflýsti tuttugu og sex brottförum í morgun. Þetta hafði áhrif á 5500 farþega.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Þegar tíðindamaður Víkurfréttir keyrði framhjá fljótlega eftir hádegi var verið að ferja vélarnar að flugstöðinni en þar voru þegar all nokkrar vélar á stæði, tilbúnar til starfa.

Bílakjarninn
Bílakjarninn