Öryggi í Grindavík talið ásættanlegt með virkum viðbúnaði
Fyrstu niðurstöður endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík benda til þess að daglegt öryggi fólks sem dvelur eða starfar í bænum sé ásættanlegt, að því gefnu að mikilvægar öryggis- og viðbragðsaðgerðir haldist virkar. Matið nær einnig til rýminga, skólahalds, velferðar barna og öryggis húsnæðis.
Í niðurstöðunum eru aðstæður í Grindavík taldar sambærilegar við aðstæður í öðrum byggðarlögum sem búa við langvarandi náttúruvá. Sérstaðan er þó sú að jarðhræringa- og eldgosaváin er viðvarandi allan sólarhringinn og allt árið. Óvissustig almannavarna er enn í gildi, landris heldur áfram í Svartsengi og þar hefur nú safnast meiri kvika en áður hefur mælst.
Frá haustinu 2023 hefur gosið níu sinnum í nágrenni Grindavíkur og bærinn verið rýmdur tíu sinnum. Síðasti atburður varð í júlí 2025 og ekki er hægt að ganga út frá því að næsti atburður verði sambærilegur þeim fyrri.
Forsenda ásættanlegs öryggis er að vöktun og viðvaranir Veðurstofunnar, starf slökkviliðs, eftirlit með hættusvæðum og sprungubeltum, viðhald varnargarða og greiðar flóttaleiðir séu tryggð. Boðkerfi þarf jafnframt að vera virkt, meðal annars með SMS-skilaboðum, viðvörunarflautu og húsgöngu.
Sérstök áhersla er lögð á stuðning við börn og aðra viðkvæma einstaklinga. Talið er unnt að viðhalda samfelldu skólahaldi og stuðningi við börn, bæði við daglegar aðstæður og ef til rýmingar kemur.
Í matinu kemur fram að umfangsmiklar aðgerðir séu þegar virkar. Sprungur hafa verið lagfærðar, hættusvæðum lokað og ónýt hús rifin. Þá hefur farið fram jarðkönnun til að finna holrými og sprungur sem ekki sjást á yfirborði. Bent er á að langvarandi óvissa geti dregið úr áhættuvitund fólks. Því skipti regluleg upplýsingagjöf og viðbúnaður vegna rýmingar með skömmum fyrirvara miklu máli.
Áhættumatið verður lifandi og reglulega uppfært. Fram undan er frekari vinna þar sem önnur starfsemi í Grindavík verður tekin til skoðunar og staðfest reglulega hvort skilyrði ásættanlegrar áhættu séu áfram uppfyllt. Matið gildir fyrir byggð svæði innan varnargarðanna.








