Sex milljarða tvöföldun Reykjanesbrautar til framkvæmda 2031–2035
Vegagerðin áformar að tvöfalda 4,7 kílómetra kafla Reykjanesbrautar frá Fitjum að Rósaselstorgi. Gert er ráð fyrir fjórum mislægum gatnamótum og fimm mislægum þverunum fyrir gangandi og hjólandi. Áætlaður framkvæmdatími er þrjú ár.
Umhverfismatsskýrsla vegna framkvæmdarinnar er nú til kynningar í Skipulagsgátt. Almenningi og umsagnaraðilum gefst kostur á að senda inn umsagnir eða athugasemdir til 13. október.
Framkvæmdakaflinn hefst við Fitjar, þar sem Reykjanesbraut tengist Hafnavegi og Víknavegi/Stekk, og nær að Rósaselstorgi við gatnamót Sandgerðisvegar og Garðskagavegar. Kaflinn liggur um Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ.
Núverandi vegur verður nýttur eins og hægt er fyrir umferð til vesturs en nýr tveggja akreina vegur byggður sunnan hans fyrir umferð til austurs. Að framkvæmdum loknum verður Reykjanesbrautin um 24 metra breið, með tveimur akreinum í hvora átt og vegriði á milli akstursstefna.
Fern mislæg gatnamót
Samkvæmt fyrirliggjandi hönnun verða mislæg gatnamót við Fitjar, Grænásbraut, Aðalgötu og Rósaselstorg. Reykjanesbraut verður lögð á brú yfir tengivegina á þessum stöðum.
Við Fitjar verður Reykjanesbrautin hækkuð um tæpa sex metra og Hafnavegur og Víknavegur lagðir undir hana. Við Grænás verður brautin hækkuð um rúma þrjá metra og við Aðalgötu um tæpa tvo metra.
Við Rósaselstorg verða svokölluð trompetgatnamót vestan við núverandi hringtorg. Sú útfærsla er valin til að stærstu umferðarstraumarnir milli Reykjanesbrautar og Garðskagavegar þurfi ekki að þvera hvor annan.
Gert er ráð fyrir fimm mislægum þverunum fyrir gangandi og hjólandi. Núverandi undirgöng við Hafnaveg verða lengd, undirgöng við Grænás endurbyggð og nýjar göngubrýr reistar við Vallarás og Rósaselstorg. Þá verður hægt að fara undir Reykjanesbraut meðfram vegum við Aðalgötu og Rósaselstorg.
Umferð gæti náð 50 þúsund bílum
Árið 2024 fóru um 13.000 til 16.500 ökutæki daglega um einstaka hluta kaflans. Umferðarspá gerir ráð fyrir að umferðin geti orðið um 30.000 ökutæki á sólarhring árið 2035 og um 50.000 árið 2050.
Alls voru 33 umferðaróhöpp skráð á kaflanum árið 2023. Tilgangur framkvæmdarinnar er meðal annars að auka umferðaröryggi, greiða fyrir umferð og bæta tengingar milli byggðarsvæða.
Framkvæmdin er á samgönguáætlun 2026–2040 og þar er gert ráð fyrir 6,2 milljarða króna fjárveitingu á tímabilinu 2031–2035. Ekki liggur fyrir hvernig framkvæmdinni verður áfangaskipt. Þrjár tillögur að fyrsta áfanga hafa verið skoðaðar og er grófur kostnaður þeirra áætlaður frá 3,2 upp í 7,8 milljarða króna, eftir umfangi.
Áhrif metin óveruleg til nokkuð neikvæð
Heildaráhrif framkvæmdarinnar á umhverfið eru metin frá því að vera óveruleg upp í nokkuð neikvæð. Áhrif á gróður, fuglalíf og vatnshlot eru metin óveruleg en áhrif á menningarminjar, loftgæði og hljóðvist nokkuð neikvæð.
Níu herminjar gætu raskast við framkvæmdir. Þá gæti hinn forni Skipsstígur orðið fyrir áhrifum vegna nálægðar við framkvæmdasvæðið. Lagt er til að stígurinn og aðrar minjar verði sérstaklega merktar á framkvæmdatíma.
Rósaselsvötn eru í um 170 metra fjarlægð frá Reykjanesbraut og njóta sérstakrar náttúruverndar. Samkvæmt matinu á framkvæmdin ekki að rýra ástand vatnshlota og verður yfirborðsvatni af veginum veitt frá vötnunum.
Gert er ráð fyrir auknum umferðarhávaða við byggingar og útivistarsvæði næst veginum. Mótvægisaðgerðir geta meðal annars falist í hljóðmönum, hljóðveggjum, hljóðdempandi yfirborði vegar eða bættri hljóðeinangrun húsa.
Umhverfismatsskýrslan og fylgigögn eru aðgengileg í Skipulagsgátt.








