Visitor
Visitor

Fréttir

Tugmilljarða framkvæmdir fram undan á Keflavíkurflugvelli
Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri flugvallarþróunar og innviða hjá Isavia. VF/hilmarbragi
Sunnudagur 20. september 2026 kl. 06:58

Tugmilljarða framkvæmdir fram undan á Keflavíkurflugvelli

Tæpir 15 milljarðar á ári í uppbyggingu

Isavia áformar að verja að meðaltali tæpum 15 milljörðum króna á ári í uppbyggingar- og viðhaldsverkefni á Keflavíkurflugvelli á næstu árum. Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri flugvallarþróunar og innviða hjá Isavia, fór yfir stórhuga uppbyggingaráætlanir félagsins á Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar. Áætlanir Isavia mótast af þróunaráætlun (Masterplan) til ársins 2045 og skemmri tíma uppbyggingaráætlun, sem ætlað er að mæta auknum farþegafjölda, tryggja öryggi og bæta þjónustugæði flugvallarins.

Umfangsmiklar stækkanir og sterk tengsl við nærsamfélagið

Framkvæmdir eru þegar hafnar við nýja tengibyggingu og aðliggjandi hlöð sem munu veita fjölbreyttari stæði fyrir flugvélar og bæta flæði farþega, en áætlað er að verkefninu ljúki árin 2030–2031. Einnig er unnið að undirbúningi á nýju afísingarsvæði ásamt tengdum akbrautum og kerfum til að safna afísingarvökva, en áætlaður heildarkostnaður þess verkefnis er um 12 milljarðar króna. Að tengibyggingu lokinni stendur til að stækka austurálmuna enn frekar til að fjölga hliðum, auk þess sem nú þegar standa yfir breytingar á öryggisleitarsvæðinu, endurnýjun á búnaði og endurbætur í suðurbyggingu.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Félagið reynist sterkur bakhjarl nærsamfélagsins, en Isavia kaupir um 100.000 vinnustundir á ári af iðnaðarmönnum á Suðurnesjum í gegnum rammasamninga. Það samsvarar um 51 heilu stöðugildi allt árið um kring, en heildarverðmæti þessara samninga nemur um 10 milljörðum króna frá árinu 2021.

Maren undirstrikaði að gætt væri að því að raða stórum verkefnum upp á skynsamlegan hátt svo álag á verktaka, hönnuði og samfélagið á svæðinu væri stöðugt og sjálfbært.

Í spilaranum hér að neðan er upptaka frá þinginu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn