Tugir lóða í boði og milljarðafjárfestingar í skólum og fráveitu
Mikil gróska er í skipulags- og byggingarmálum í Reykjanesbæ en mikið framboð er af byggingarlandi fyrir bæði atvinnulíf og íbúðarhúsnæði. Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Reykjanesbæjar, fór yfir umfangsmikil uppbyggingaráform sveitarfélagsins á Atvinnu- og framkvæmdaþinginu í Hljómahöll.
Eins og staðan er núna eru um 36 atvinnuhúsalóðir tilbúnar til úthlutunar og aðrar 20 í undirbúningi. Þar af eru 16 stórar lóðir klárar í Helguvík ásamt fimm hektara landi við gamla kísilverið sem býður upp á mikla möguleika. Þá eru 41 sérbýlishúsalóð laus til úthlutunar auk nýrra svæða sem eru í deiliskipulagi.
Umfangsmikil íbúðauppbygging og endurnýjun á skólum
Framtíðarbyggingaráform í Keflavíkurborg, nýju byggingarsvæði nyrst í Keflavík, ná yfir 25 hektara svæði, auk þess sem unnið er að uppbyggingu við Trölladal, Asparlaut fyrir par- og einbýlishús og í Dalshverfi 3 fyrir 20 raðhús. Þá hefur verið undirrituð viljayfirlýsing um Suðurbrekku (Brekkubyggð) sem gerir ráð fyrir 144 til 219 íbúðum. Samhliða þessu er mikið lagt í mennta- og frístundainnviði. Endurbætur og stækkanir standa yfir á Myllubakkaskóla með áætluð lok 2027–2028 og Holtaskóla til loka árs 2027. Einnig hefur verið skrifað undir viljayfirlýsingu um viðbyggingu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og unnið er að lokastigi Stapaskóla þar sem rís 120 barna leikskóli.
Fram undan eru sömuleiðis milljarðaframkvæmdir í fráveitumálum, þar á meðal ný hreinsunarstöð, Helga, í Helguvík, ásamt hugmyndum um nýtt fimleikahús og leikskóla til að mæta þéttingu byggðar. Guðlaugur benti á að sveitarfélagið væri opið fyrir fjölbreyttum leiðum við fjármögnun framkvæmda, svo sem einkaframkvæmd eða leiguleiðum (PPP), til að flýta fyrir framþróun á svæðinu.
Í spilaranum hér að neðan er upptaka frá þinginu.







