Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Fréttir

Tækifærin í fjórða stærsta sveitarfélagi landsins
Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs Reykjanesbæjar. VF/hilmarbragi
Laugardagur 19. september 2026 kl. 04:42

Tækifærin í fjórða stærsta sveitarfélagi landsins

Öflugur mannauður og traustir innviðir

Reykjanesbær er ungt, fjölbreytt og ört vaxandi samfélag en íbúar eru nú um 24.000 og telja um 77% af heildaríbúafjölda Suðurnesja. Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs Reykjanesbæjar, dró upp stóru myndina af stöðu sveitarfélagsins á nýafstöðnu Atvinnu- og framkvæmdaþingi. Styrkur svæðisins felst ekki síst í mannaflanum en vinnuaflið er stórt, ungt og sveigjanlegt. 

Í könnun Maskínu fyrir sveitarfélagið kom í ljós að yfir 80% íbúa eru með menntun umfram grunnskólapróf, sem gefur sterkan grunn fyrir frekari atvinnuuppbyggingu. Halldór benti á að þótt sveiflur í mannaflaþörf flugvallarins hafi stundum skapað áskoranir feli það líka í sér tækifæri þar sem hér séu tiltækar og vinnufúsar hendur fyrir ný fyrirtæki.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Sterkt samkeppnisforskot og fjölbreytt atvinnulíf

Góðar samgöngur og kjörstaðsetning tryggja sveitarfélaginu sterka stöðu, en stuttar vegalengdir einkenna svæðið þar sem aðeins tekur um fimm mínútur að keyra á alþjóðaflugvöllinn og tæplega 40 mínútur á innanlandsflugvöllinn eða inn á höfuðborgarsvæðið. Þá er aðgengi að fisk-, frakt-, ferju- og gámahöfnum á innan við klukkustund. Fjölbreytt atvinnulíf svæðisins byggir á öflugri ferðaþjónustu, stærsta gagnaversklasa landsins, vaxandi fiskeldi og matvælaframleiðslu.

Halldór undirstrikaði að þótt margvísleg áföll síðustu áratuga hafi reynt á seiglu samfélagsins hafi þau um leið styrkt það og stefna innviðir ásamt menningarlífi nú í enn frekari sókn.

Í spilaranum hér að neðan er upptaka frá þinginu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn