Visitor
Visitor

Fréttir

Festi veðjar á áframhaldandi vöxt í Reykjanesbæ
Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi, í pallborði á þinginu. VF/hilmarbragi
Föstudagur 18. september 2026 kl. 18:01

Festi veðjar á áframhaldandi vöxt í Reykjanesbæ

Hrósaði sveitarfélaginu fyrir djarfar ákvarðanir

Festi hefur á undanförnum árum veðjað af fullum þunga á Reykjanesbæ sem lykilsamstarfsaðila til framtíðar. Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi, hrósaði sveitarfélaginu sérstaklega fyrir framsýni, góð skilaboð til atvinnulífsins og áherslu á samstarf einkageirans og hins opinbera (PPP) í pallborðsumræðum á Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar. Ásta benti á að krafturinn á svæðinu væri greinilegur og að fólksfjölgun um tæp 50% á síðasta áratug væri gígantískur árangur sem fá sveitarfélög gætu státað sig af. Þá skipti bættur ferðatími og aukið öryggi á Reykjanesbraut miklu máli fyrir bæði starfsfólk og viðskiptavini.

Innlend og erlend viðskipti samofin ásamt aukinni samvinnu

Festi hefur fjárfest umtalsvert á svæðinu til að þjóna bæði heimamönnum og ferðamönnum. Dæmi um það eru N1 við Flugvelli í Reykjanesbæ, sem býður upp á nýja glæsilega stöð með hleðslu og eldsneyti fyrir meðal annars bílaleigur, stækkuð verslun Krónunnar á Fitjum og tvær Elko-verslanir á Keflavíkurflugvelli. Ásta hrósaði bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ sérstaklega fyrir að fella innviðagjöld á fermetra niður í núll krónur, en það sýnir að pólitíkin lítur á uppbyggingu sem fjárfestingu til framtíðar og býr til hvata í samkeppni við önnur sveitarfélög.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Hún kallaði eftir meira samstarfi á milli hins opinbera og einkageirans á landsvísu og sagði Reykjanesbæ sýna gott fordæmi með því að nálgast fyrirtæki, bjóða upp á góðar lóðir og hugsa þjónustuna sem eina heild. Ásta sagði Festi finna fyrir miklum krafti í bænum og hlakka til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og veita íbúum og gestum svæðisins framúrskarandi þjónustu.

Hvað er PPP?

PPP stendur fyrir ensku orðin Public-Private Partnership, sem á íslensku er oftast kallað einkaframkvæmd eða samstarf hins opinbera og einkaaðila. Þegar rætt er um PPP er átt við samstarfsleið þar sem einkafyrirtæki og sveitarfélag (eða ríkið) taka höndum saman um stór verkefni, eins og að fjármagna, hanna, byggja og jafnvel reka innviði eða opinber mannvirki.

Í spilaranum hér að neðan er upptaka frá þinginu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn