Aðaltorg býður Tækniskólanum pláss í Reykjanesbæ
Öflugt byggingarland og tækifæri fyrir iðnmenntun í Reykjanesbæ
Aðaltorg í Reykjanesbæ býður Tækniskóla Íslands aðkomu að öflugu byggingarlandi nærri Keflavíkurflugvelli. Ingvar Eyfjörð, framkvæmdastjóri Aðaltorgs, kynnti þessar hugmyndir og víðfeðma uppbyggingu svæðisins í pallborðsumræðum á Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar í vikunni.
Aðaltorg hefur yfir að ráða um 16 hektara landsvæði með möguleika á allt að 87.000 byggingarfermetrum í samræmi við vaxtaráætlanir svæðisins og K64, framtíðarsýn Kadeco. Þegar hefur verið reistur um 13.000 fermetra kjarni með hóteli, verslunum og þjónustu, en miklir möguleikar eru á frekari nýtingu landsins.
Kjöraðstæður fyrir menntun og samstarf einkageira og opinberra aðila
Aðaltorg býður upp á alla nauðsynlega grunninnviði, stutta fjarlægð við stofnbrautir og kjöraðstæður fyrir Tækniskólann á sameiginlegu vinnusóknarsvæði við höfuðborgina, en á svæðinu er blómlegt og öflugt nærsamfélag iðnaðarmanna. Ingvar undirstrikaði að Aðaltorg velji markvisst að skipta við heimamenn vegna mikilla gæða, hagkvæmni og hárrar framleiðni.
Uppbygging á borð við Aðaltorg byggir á því að skipuleggja sig inn í tækifærin í samstarfi við Reykjanesbæ, Isavia og Kadeco til að veita heildstæða samfélagsþjónustu. Ingvar lýsti yfir mikilli bjartsýni á framtíð svæðisins og sagði tækifærin felast í því að þétta samtalið milli iðnaðar, ferðaþjónustu og menntastofnana til að gera Reykjanesbæ að raunverulegum áfangastað fyrir íbúa og gesti.








