Sharon Stone ljáir Grindavíkurmynd rödd sína
Hin heimsþekkta bandaríska leikkona Sharon Stone er sögumaður í erlendri útgáfu heimildarmyndarinnar Ó góða gamla Grindavík sem sýnd var fyrr á þessu ári hér á landi. „Hún var að klára að lesa inn fyrir ensku útgáfuna og við erum að byrja að senda myndina á kvikmyndahátíðir,“ segir Margrét Hrafnsdóttir, leikstjóri og framleiðandi myndarinnar.
Margrét segir upphafið að samstarfi við leikkonuna hafa verið þannig að þegar myndin Ó góða gamla Grindavík var að verða tilbúin hafi hún sent á hana á til þess að fá viðbrögð. Í framhaldinu beðið hana að styðja við myndina og Grindvíkinga ef henni líkaði hún með því að gerast meðframleiðandi og viðbrögðin komu hratt til baka: „Það væri mér mikill heiður“ (I would be honored“).
„Svo þegar við fórum að vinna að erlendu útgáfunni bað ég hana um að gerast líka sögumaður og það var hún strax til. Á milli þess sem hún ferðast um heiminn fær hún boð á ótrúlegustu viðburði auk þess að leika í vinsælustu sjónvarpsseríunum í dag eins og Euphoria á HBO Max. Við fundum stund og tókum hana upp. Hún vildi ólm bera fram öll íslensku orðin og bað mig hátt og skýrt að fara með þau hátt og skýrt áður en hún gerði það. Hún sagði einfaldlega um Grindvíkinga: „Þeir hafa gengið í gegnum svo margt“ („They have gone through so much“.)









