Einn besti leikmaður Keflavíkur til Sýrlands
Bestu deildarlið Keflavíkur í knattspyrnu hefur gengið frá sölu á Muhamed Alghoul til Homs Al-Fidaa í Sýrlandi. Alghoul hefur verið einn besti leikmaður liðsins á keppnistíðinni.
Muhamed kom fyrst til Keflavíkur sumarið 2023 og lék með liðinu út tímabilið áður en leið hans lá aftur til Króatíu. Hann sneri aftur til Keflavíkur fyrir tímabilið 2025 og hefur síðan verið lykilmaður í liðinu.
Muhamed skoraði sjö mörk og lagði upp ellefu í Lengjudeildinni í fyrra og fór síðan á kostum í umspilinu þar sem hann lagði upp fimm mörk.
Muha hefur síðan verið mikilvægur hlekkur í Keflavíkurliðinu sem hefur fest sig í sessi í Bestu deildinni á ný, segir í tilkynningu frá félaginu.





