Verne
Verne

Fréttir

Land risið um fimm sentimetra við Svartsengi á þremur mánuðum
Þriðjudagur 15. september 2026 kl. 16:38

Land risið um fimm sentimetra við Svartsengi á þremur mánuðum

Aflögunarmælingar sýna áfram landris á Svartsengissvæðinu. Á undanförnum þremur mánuðum hefur landris mælst um fimm sentimetrar, að því að fram kemur á vef Veðurstofu Íslands.

Landrisið bendir til þrýstingur er enn að byggjast upp á nokkra km dýpi.  

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Á meðan landris heldur áfram er líklegasta sviðsmyndin áfram að kvikuhlaup verði frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti leitt til eldgoss. 

Ekki er hægt að segja til um hvenær slíkur atburður gæti orðið. Eftir því sem lengra líður frá síðasta atburði eykst óvissa um tímasetningu næsta atburðar. Gera þarf áfram ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og fyrir fyrri gos á Sundhnúksgígaröðinni. 

Timaradir-gps-stodvar-sksh-15-09-2026

Tímaraðir frá GPS-stöðinni SKSH sýna láréttar og lóðréttar færslur frá lokum júní til september 2026. Lóðrétta færslan sýnir að landris heldur áfram og bendir til áframhaldandi kvikusöfnunar undir Svartsengi.

Skjálftavirkni 

Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík er áfram lítil. Smávægileg aukning hefur þó orðið á litlum skjálftum undanfarið, meðal annars í kvikuganginum. Dýpi skjálftanna hefur lítið breyst. 

Hættumat 

Hættumat er óbreytt og gildir til 30. september. 

2026-06-30_hazard_map_IMO

Bílakjarninn
Bílakjarninn