Viðskipti

Ég verð alltaf Njarðvíkingur í hjartanu
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 15. september 2026 kl. 05:38

Ég verð alltaf Njarðvíkingur í hjartanu

„Fyrstu mánuðirnir hafa verið bæði annasamir og skemmtilegir. Það sem hefur komið mér mest á óvart er tvennt, annars vegar hversu áþreifanlega falleg fyrirtækjamenningin er en það starfa yfir 800 manns hjá félaginu af 44 þjóðernum við mjög fjölbreytt störf, t.d. hönnun, þjónustu, rannsóknir og vísindi, tækni, framreiðslu, vöruþróun, sölu- og markaðssetningu,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir sem í vor tók við starfi forstjóra Bláa Lónsins í Grindavík, eins stærsta ferðaþjónustufyrirtækis á Íslandi.

Sigríður Margrét Oddsdóttir flutti til Njarðvíkur þegar hún var tíu ára og eignast sínar bestu vinkonur. Hún tók nýlega við sem forstjóri Bláa Lónsins.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Sigríður dvaldi á Suðurnesjum í all nokkur ár þegar hún var stelpa en hún fylgdi fjölskyldunni til Njarðvíkur þegar faðir hennar, Oddur Einarsson, tók við sem bæjarstjóri Njarðvíkurbæjar. Sigga Magga er því komin nálægt sínum æskuslóðum þegar hún stýrir málum í Bláa Lóninu í Grindavík.

Þú hefur stýrt stórum vörumerkjum eins og Já og Lyfju og komst svo inn í Bláa lónið úr hringiðu atvinnulífsins hjá SA. Hvað var það sem dró þig að Bláa lóninu á þessum tímapunkti?

Bláa Lónið hf. er einstakt félag, ekki bara á Íslandi heldur á heimsvísu. Fyrirtækið hefur verið byggt upp með langtímasýn og hugrekki að leiðarljósi. Hjá fyrirtækinu starfar framúrskarandi fólk og að baki því stendur framúrskarandi fólk.

Grímur Sæmundsen hafði stýrt Bláa lóninu frá stofnun árið 1992 eða í rúm 33 ár. Hvernig er að taka við keflinu af forstjóra sem hefur verið svo samofinn sögu og ímynd fyrirtækisins?

Grímur er svo sannarlega ekki hættur þó að hann hafi látið af störfum sem forstjóri, hann tók við sem stjórnarformaður félagsins og er stærsti einstaki eigandi þess. Grímur er mikil fyrirmynd fyrir alla sem hafa ástríðu fyrir viðskiptum. Það voru því ekki bara tímamót í sögu félagsins þegar hann lét af störfum sem forstjóri, heldur tímamót í íslensku atvinnulífi. Það eru forréttindi að fá að vinna með Grími og við erum öflugt teymi.

Hvað hefur komið þér mest á óvart við innviði og menningu Bláa lónsins?

Þetta er magnaður hópur sem hefur mikla ástríðu fyrir því að veita góða þjónustu og ná árangri. Hitt er hversu skýr stefna fyrirtækisins er bæði í orði og framkvæmd, það er sjaldgæft að koma að félagi þar sem tækifærin eru jafn mörg og metnaðurinn jafn mikill.

Frá almyrkvanum í sumar. 

Seigla og útsjóBláa lónið hefur þurft að sýna ótrúlega seiglu í gegnum eldsumbrot og raskanir á Reykjanesi á undanförnum árum. Hvernig hefur teymið tæklað þessa óvissu og hvernig horfir öryggis- og viðbragðsáætlun Bláa lónsins við þér í dag?

Bláa Lónið er fyrirmynd þegar kemur að seiglu og útsjónarsemi og því hefur ítrekað tekist að snúa áskorunum upp í tækifæri. Eftir því hefur verið tekið og um það hefur verið skrifað, það er til dæmis kafli sem heitir „Building Resilience in Volatile Environments: The Case of the Blue Lagoon in Iceland“ í bókinni „Crisis in Context“ eftir Þröst Ólaf Sigurjónsson og Láru Jóhannesdóttur sem ég hvet alla til að lesa. Það eru fá þjónustufyrirtæki á Íslandi sem búa að jafn góðum öryggis- og viðbragðsáætlunum.

Hvernig hefur gengið að ná aftur til erlendra ferðamanna og endurreisa upplifunina á svæðinu eftir allar lokanirnar og fréttaflutninginn erlendis?

Bláa Lónið hf. er mikilvægt fyrirtæki innan íslenskrar ferðaþjónustu, Bláa Lónið sjálft er eitt þekktasta vörumerki landsins og hátt hlutfall ferðamanna heimsækir þennan einstaka áfangastað. Tekjur félagsins jukust í fyrra um 36% frá fyrra ári, eiginfjárhlutfall félagsins er 52% og félagið stendur um þessar mundir að baki stærsta fjárfestingarverkefni innan íslenskrar ferðaþjónustu með uppbyggingu í Þjórsárdal. Ég myndi því segja að Bláa Lónið hafi náð vopnum sínum þó að við séum í raun bara rétt að byrja.

Skýr stefna

Bláa lónið er í dag miklu meira en baðstaður í Svartsengi — þar undir rekið þið hótelin Retreat og Silica, Highland Base í Kerlingarfjöllum, húðvörulínu og verkefni í Þjórsárdal og á Hoffelli. Hvert verður þitt helsta áherslumál í þessari víðtæku starfsemi?

Stefna félagsins er skýr og við höfum kortlagt með hvaða hætti við munum skapa aukið virði á komandi árum. Við ætlum að gera það á þrjá vegu, í fyrsta lagi með því að halda áfram að þróa og bæta upplifun allra okkar gesta í Svartsengi og styðja við vöxt Blue Lagoon Skin Science, í öðru lagi með þróunarverkefnum og uppbyggingu annars staðar á landinu, og í þriðja lagi með ytri vexti en á dögunum var tilkynnt um fyrirhugaðan samruna okkar við Arctic Adventures og fjárfestingu í öðrum baðlónum en hvort tveggja er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Íslensk ferðaþjónusta hefur þroskast mikið. Hvernig á Bláa lónið að halda stöðu sinni sem eitt helsta vörumerki landsins á næstu árum?

Alþjóðaviðskipti eru lífæð Íslands og íslensk ferðaþjónusta er í dag stærsta útflutningsgrein landsins. Að því sögðu þá eiga bæði ferðaþjónustan og Bláa Lónið mikið inni, sérstaklega utan háannar. Okkar framtíðarsýn er heilsu- og vellíðunarlandið Ísland, við leggjum áherslu á fjárfestingar og uppbyggingu innviða fyrir upplifunar- og vellíðunarferðaþjónustu. Sú tegund af ferðaþjónustu fellur einstaklega vel að styrkleikum og sérstöðu Íslands og fer jafnframt ört vaxandi. Ferðavilji á heimsvísu hefur aldrei verið meiri og það skiptir mjög miklu máli að við nýtum vel þá innviði sem hafa verið byggðir upp með því að markaðssetja landið undir réttum formerkjum.

Hvernig samræmist frekari stækkun og vöxtur Bláa lónsins kröfum samtímans um sjálfbærni, náttúruvernd og ábyrga ferðaþjónustu?

Bláa Lónið hefur alla tíð lagt mikla áherslu á sjálfbærni, náttúruvernd og ábyrga ferðaþjónustu. Vellíðan í sátt við náttúru og nærsamfélög. Bláa Lónið sjálft er gott dæmi um það hvernig hrakstraumur verður auðlind en það gerðist ekki af sjálfu sér heldur með áratugum rannsókna, þróunar, hönnunar og hugrekki til fjárfestinga. Við erum auk þess með fjölmargar gæðavottanir því til stuðnings.

Þú stýrðir stórum langtímakjarasamningum í störfum þínum hjá Samtökum atvinnulífsins. Hvernig nýtist sú víðtæka reynsla úr hringiðu atvinnulífsins inn í daglegan rekstur hjá stóru fyrirtæki eins og Bláa lóninu?

Fyrir fólk með ástríðu fyrir viðskiptum eru Samtök atvinnulífsins einstakur starfsvettvangur, þar gefast tækifæri til þess að hafa áhrif á rekstrarumhverfi fyrirtækja daglega. Öll verkefni veita manni dýrmæta reynslu, innsýn og tækifæri til þess að dýpka skilninginn á samtímanum.

Fréttir hafa birst af uppsögnum starfsfólks. Hvað eru margir starfsmenn í fyrirtækinu í Grindavík og svo á öðrum stöðum þar sem þið eruð með eignarhald?

Við fórum í skipulagsbreytingar í höfuðstöðvum félagsins fyrr í sumar, en tilgangur þeirra var fyrst og fremst að skerpa á hlutverki móðurfélagsins í þjónustu sinni við dótturfélögin, gera skilin á milli kjarnastarfsemi og stoðstarfsemi skýrari, auka áherslu á sölu- og markaðssetningu með tækni og á sama tíma sækja nauðsynlega hæfni til að ná árangri í framtíðinni. Á Íslandi starfa yfir 800 manns hjá samstæðunni en með þeim þróunarverkefnum og þeim ytri vexti sem er á teikniborðinu hjá okkur þá mun störfum innan samstæðunnar fjölga mjög mikið á komandi árum.

Hvernig myndi samstarfsfólk þitt lýsa þér sem leiðtoga — og hefur stjórnunarstíll þinn breyst eftir því sem þú tekur við stærri áskorunum?

Ég ímynda mér að þau telji mig kröfuharða og árangursdrifna. Ég er meingölluð, allt of metnaðargjörn, hégómagjörn og á það til að vera góð við sjálfa mig, en veg gallana upp með lífsgildunum mínum, legg áherslu á góð samskipti, að taka ábyrgð og líta jákvæðum augum á verkefnin.

Þú hefur opnað á að þú varðst nýverið amma. Hvernig heldurðu jafnvægi á milli þess að stýra einu stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins og eiga gæðastundir með fjölskyldunni?

Því fylgja fórnir að ná árangri, sama hvort um ræðir fyrirtækjarekstur, íþróttir, stjórnmál eða listir. Það nær enginn topp árangri án þess að leggja mikið á sig, það þýðir fjarveru frá fjölskyldunni. Ég er sem betur fer mjög vel gift og maðurinn minn hefur tekið leiðtogahlutverkið að sér þegar kemur að fjölskyldunni.

Njarðvíkurpían

Þú ert með Suðurnesjatengingu eftir að hafa alið manninn þar þegar faðir þinn var bæjarstjóri í Njarðvík. Hvernig minnistu þess tíma og ertu enn með einhverja tengingu þangað?

Ég verð alltaf Njarðvíkingur í hjarta, þegar ég var tíu ára gömul og flutti til Njarðvíkur kynntist ég mínum bestu vinkonum sem ég held enn tengslum við, þó að þær hafi vissulega þurft að víkja fyrir vinnunni eins og fjölskyldan þegar kemur að samvistum undanfarin misseri.

Þegar þú færð gesti að utan eða vilt eiga góðan dag sjálf — hver er þinn uppáhaldskrókur í starfsemi Bláa lónsins og á Íslandi utan lónsins?

Bláa Lónið sjálft, þessi einstaki áfangastaður með þessum einstaka jarðsjó sem þú finnur hvergi annars staðar og er eitt af undrum veraldar. Jarðsjór sem er ríkur af steinefnum, örþörungum og kísli sem yfir þrjátíu ár af rannsóknum sýna að hafa lækningamátt. Öll mómentin sem þú getur upplifað ofan í lóninu, hvort sem er með Blue Lagoon Seltzer í hönd, í nuddi, floti, gufu, eða bara kyrrðinni sem þú finnur í fjarlægasta kima lónsins. Þetta eru níu milljón lítrar af jarðsjó sem endurnýja sig á 40 klukkustunda fresti og það er engu líkt að heimsækja lónið. Utan lónsins þá eru Jarðböðin á Mývatni, Fontana á Laugarvatni og Sjóböðin á Húsavík í miklu uppáhaldi.

Sigga Magga á nýjum slóðum í Þjórsárdal.

Bílakjarninn
Bílakjarninn