Kadeco
Kadeco

Minningar

Hólmbert Friðjónsson látinn
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 14. september 2026 kl. 20:59

Hólmbert Friðjónsson látinn

Hólmbert Friðjónsson fyrrverandi leikmaður og knattspyrnuþjálfari frá Keflavík er látinn, 85 ára að aldri.

Hólmbert fæddist í Keflavík 11. mars 1941. Eftir hefðbundna skólagöngu lærði Hólmbert rafvirkjun og starfaði við fagið um hríð. Hann starfaði lengi hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli og var yfirmaður í innkaupadeild.

Eftirlifandi eiginkona Hólmberts er Dagmar Sæunn Maríusdóttir, fædd 1945. Þau gengu í hjónaband 1968. Hólmbert átti fyrir dótturina Jonnu Paulsen í Færeyjum, fædda 1964. Börn Hólmberts og Dagmarar eru Friðjón Örn, fæddur 1969, Ásgerður María, fædd 1971 og Maríus Garðar, fæddur 1979. Barnabörnin eru þrjú, Sylvía Dagmar Friðjónsdóttir, fædd 1989, Hólmbert Aron Friðjónsson, fæddur 1993 og Marel Andri Friðjónsson, fæddur 2001. Barnabarnabörnin eru fjögur og það fimmta er væntanlegt í heiminn í janúar.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Víðir Sigurðsson tók saman áhugaverðan pistil á fotbolti.net um Hólmbert þar sem segir m.a.:

Hólmbert fæddist 11. mars 1941 og hóf að leika með liði Keflvíkinga í efstu deild sautján ára gamall árið 1958. Hann lék með liðinu til 1965 og spilaði aftur með því 1968 og var í fyrsta Íslandsmeistaraliði Keflavíkur árið 1964. Þá lék hann níu af tíu leikjum liðsins í deildinni og skoraði tvö mörk. Samtals skoraði Hólmbert 11 mörk í 58 leikjum með Keflavíkurliðinu í efstu deild og var jafnframt í liðinu sem vann gömlu 2. deildina árið 1962.

Hólmbert lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 1968 en var þá ráðinn þjálfari Keflavíkurliðsins, aðeins 28 ára gamall. Liðið hafði þá naumlega haldið sæti sínu í efstu deild en undir hans stjórn slógu Keflvíkingar rækilega í gegn árið 1969 og stóðu uppi sem Íslandsmeistarar.

Hann þjálfaði liðið áfram árið 1970 og þá endaði liðið í þriðja sæti, ásamt því að leika tvo eftirminnilega Evrópuleiki gegn enska liðinu Everton.

Hólmbert tók á ný við Keflavíkurliðinu árið 1977, þar sem það endaði í fimmta sæti, og þjálfaði síðan nágrannana í Njarðvík árið eftir þar sem litlu munaði að hann kæmi þeim upp í næstefstu deild í fyrsta skipti.

Hólmbert tók þá við liði Fram og stýrði því í þrjú ár og stýrði því til bikarmeistara tvívegis. Þá var Hólmbert ráðinn til KR og stýrði Vesturbæjarliðinu í þrjú ár.

Hólmbert sneri aftur til Keflavíkur og þjálfaði sitt gamla félag árin 1985 og 1986 en það endaði í fimmta sæti bæði árin. Síðasta starf hans hjá félagsliði var haustið 1989 þegar hann tók aftur við Keflavíkurliðinu í vonlítilli stöðu á botni efstu deildar og stýrði því í síðustu þremur leikjum tímabilsins þar sem litlu munaði að það héldi sæti sínu.

Hann stýrði liðum sínum samtals í 191 leik í efstu deild karla.

Síðasta starf Hólmberts sem þjálfara var árið 1991 þegar hann þjálfaði 21-árs landslið karla.

Hólmbert var í fyrsta Íslandsmeistaraliði Keflavíkur 1964 og er þriðji frá vinstri í efri röð.

Bílakjarninn
Bílakjarninn