Andri Pétur Torfason - minning
Það er með miklum söknuði að við kveðjum Andra Pétur Torfason.
Við fengum þau forréttindi að kynnast Andra Pétri þegar hann leitaði til Bjargarinnar í ósk um þjónustu og skilur hann eftir sig djúp spor í hjörtum okkar. Hann mætti lífinu með sínum hætti, stundum í mótvindi en ávallt með von um betri daga. Lífið lagði honum ýmsar hindranir, en oftar en ekki sýndi hann ótrúlegan styrk, kjark og vilja til að halda áfram.
Andri sótti sér aðstoð, tók þátt í endurhæfingu og vann að sínum markmiðum af einlægni. Hann hafði trú á því að lífið gæti orðið betra og leitaði leiða til að byggja upp framtíð sína. Við fengum að fylgjast með þeirri vegferð og deila með honum bæði sigrum og áskorunum.
Andri hafði einstakt lag á að fá fólk til að brosa. Hann gat verið þrjóskur en hann var alltaf skemmtilegur og hjartahlýr. Hann átti auðvelt með að mynda tengsl og á bak við alla baráttuna bjó góður maður sem þráði það sama og við öll, að eiga sinn stað, finna tilgang og tilheyra.
Hann sagði okkur oftar en einu sinni að þegar honum fannst að allar dyr hefðu lokast, þá hefðu dyrnar hjá okkur staðið opnar. Þau orð höfum við borið með okkur og munum halda áfram að gera. Við sáum í Andra mann sem átti skilið tækifæri, virðingu og von.
Andri Pétur minnti okkur á mikilvægi þess að dæma ekki fólk út frá erfiðleikum þess, heldur sjá manneskjuna á bak við söguna. Hann kenndi okkur að missa aldrei trúna á fólk og að halda áfram að rétta fram hönd þegar lífið reynir hvað mest á.
Það er auðvelt fyrir samfélagið að skilgreina fólk út frá veikindum þess eða erfiðleikum. En Andri Pétur var miklu meira en það. Hann var sonur, faðir, bróðir, vinur og manneskja með drauma, styrkleika og vonir eins og við öll. Við sem störfum með fólki sem glímir við geðrænan vanda og fíkn sjáum á hverjum degi að þetta eru sjúkdómar, ekki persónulegir brestir. Bak við hverja baráttu er manneskja sem á skilið virðingu, skilning og tækifæri.
Hugur okkar og hjörtu eru hjá syni hans, foreldrum hans, systrum og öllum þeim sem elskuðu hann. Missir þeirra er mikill.
Við munum minnast Andra Péturs með hlýju, brosi og þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast honum. Líf hans skipti máli. Hann hafði áhrif á fólk í kringum sig og skilur eftir sig minningar sem munu lifa áfram.
Sofðu rótt, kæri Andri.
Takk fyrir traustið og samfylgdina.
Díana, Þórdís, Ósk, Kristjana og Magnea
fyrir hönd Bjargarinnar geðræktarmiðstöðvar Suðurnesja.







