Fréttir

Samþykkja stækkun Suðurvalla um allt að 351 fermetra
Leikskólinn Suðurvellir í Vogum. Mynd: Sveitarfélagið Vogar
Laugardagur 14. nóvember 2026 kl. 05:30

Samþykkja stækkun Suðurvalla um allt að 351 fermetra

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum fyrri áfanga stækkunar Heilsuleikskólans Suðurvalla við Suðurgötu 5. Áfanginn felur í sér uppsetningu allt að 351 fermetra færanlegs húsnæðis fyrir þrjár leikskóladeildir og aukna aðstöðu fyrir starfsfólk.

Áformin voru grenndarkynnt fyrir eigendum og íbúum aðliggjandi fasteigna. Ein athugasemd barst, frá eigendum Hofgerðis 7b. Þeir gerðu ekki athugasemd við fyrri áfangann en mótmæltu mögulegri 189 fermetra framtíðarstækkun til suðurs. Jafnframt komu fram ábendingar um mögulega tengibyggingu, aukna umferð og umferðaröryggi.

Bæjarstjórn tekur sérstaklega fram að framtíðarstækkunin sé ekki hluti af samþykktinni. Hún verði tekin til sérstakrar málsmeðferðar ef til hennar kemur.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Umhverfis- og skipulagsnefnd hafði áður fjallað um athugasemdina og taldi hana ekki gefa tilefni til breytinga á fyrri áfanganum. Ábendingum um gönguleiðir, umferð og umferðaröryggi verður komið til viðeigandi sviða sveitarfélagsins til skoðunar.

Umhverfis- og skipulagssviði hefur verið falið að annast framhald málsins, þar á meðal að tilkynna þeim sem gerðu athugasemd um niðurstöðuna.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100