Tuttugu milljóna styrkur til nýs björgunarskips
Bæjarráð Grindavíkur samþykkti á fundi sínum 3. nóvember að veita 20 milljóna króna styrk til kaupa á nýju björgunarskipi fyrir björgunarsveitina Þorbjörn.
Til grundvallar ákvörðuninni lá bréf frá stjórn sveitarinnar þar sem óskað var eftir stuðningi við kaupin. Útgreiðsla styrksins verður í samráði við stjórn björgunarbátasjóðsins.





