Stofna Voganeistann – A-listinn gagnrýnir fyrirkomulag úthlutana
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt að stofna Voganeistann, nýjan framtakssjóð sem á að styðja við frumkvæði, nýsköpun og samfélagsleg verkefni. Fimm fulltrúar samþykktu stofnun sjóðsins og reglur hans en tveir fulltrúar A-listans greiddu atkvæði gegn tillögunni.
Sjóðurinn er ætlaður einstaklingum, félagasamtökum, óformlegum hópum og fyrirtækjum sem vilja þróa hugmyndir og hrinda í framkvæmd verkefnum sem hafa jákvæð áhrif á samfélagið í Vogum. Verkefnin geta meðal annars tengst menningu, listum, íþróttum, frístundastarfi, samfélagsþátttöku og nýsköpun.
Við mat á umsóknum verður horft til samfélagslegs gildis, raunhæfrar framkvæmdar og möguleika verkefna til áframhaldandi þróunar. Fjárframlag til sjóðsins og hámarksfjárhæð einstakra styrkja verða ákveðin við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027. Gert er ráð fyrir einni til tveimur úthlutunum á ári og verður sérstaklega auglýst eftir umsóknum.
Í bókun meirihluta bæjarstjórnar er stofnun sjóðsins fagnað og lögð áhersla á að úthlutanir byggi á skýrum reglum, jafnræði og gagnsæi.
Fulltrúar A-listans gagnrýna hins vegar að pólitískt skipuð nefnd eigi að annast úthlutanir. Í bókun þeirra segir að það rýri trúverðugleika sjóðsins í ljósi þess að honum sé ætlað að styðja við frumkvæði og nýsköpun. Eðlilegra væri að sjóðsnefndin yrði skipuð fulltrúum atvinnulífs og félagasamtaka.
Björg Ásta Þórðardóttir bæjarstjóri segir í tilkynningu á vef sveitarfélagsins að Voganeistinn eigi að auðvelda fólki að koma hugmyndum í framkvæmd.
„Vonandi verður sjóðurinn sá neisti sem hvetur fólk til að taka fyrsta skrefið og gefur hugmyndunum svigrúm til að vaxa,“ segir hún.





