Vilja undanþágu frá stimpilgjaldi við endurkaup
Bæjarráð Grindavíkur vill að Grindvíkingar verði undanþegnir stimpilgjaldi og greiðslu þinglýsingarkostnaðar þegar þeir kaupa fyrri heimili sín aftur af Fasteignafélaginu Þórkötlu. Þetta kemur fram í bókun bæjarráðs frá fundi þess 3. nóvember.
Bæjarráð leggur áherslu á að við endurkaupin gildi sama regla um undanþágu og við sölu eignanna til Þórkötlu. Vísar ráðið þar til laga nr. 16/2024.
Að mati bæjarráðs er það augljóst réttlætismál að Grindvíkingar þurfi ekki að greiða stimpilgjald tvisvar vegna kaupa á sömu eign. Ráðið mælist því til þess að undanþágan verði skýrt tryggð í þeim lagabreytingum sem Alþingi þarf að samþykkja vegna útfærslu endurkaupaáætlunar Þórkötlu.
Í bókuninni segir að þannig yrði komið í veg fyrir að yfirvöld skattleggi það neyðarviðbragð að íbúar þurfi tímabundið að hverfa frá eignum sínum vegna náttúruhamfara.





