Fimm milljónir til vinnustaðaklasa í Grindavík og Reykjanesbæ
Tvö verkefni á Suðurnesjum hafa fengið samtals fimm milljónir króna í styrki frá innviðaráðuneytinu til uppbyggingar og reksturs vinnustaðaklasa. Golan í Grindavík fær fjórar milljónir króna og Konvin-setrið á Ásbrú í Reykjanesbæ eina milljón.
Grindavíkurbær er umsækjandi vegna Golunnar og er styrkurinn ætlaður til nýrrar uppbyggingar vinnustaðaklasa á forgangssvæði. Konvin ehf. fær styrk til að styðja við rekstur Konvin-setursins á Ásbrú.
Styrkirnir eru hluti af úthlutun Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra til 14 verkefna um land allt. Heildarupphæð úthlutunarinnar nemur rúmum 27 milljónum króna.
Úthlutað er á grundvelli byggðaáætlunar 2022–2036, samkvæmt aðgerð B.7 um óstaðbundin störf. Markmið hennar er að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytni starfa á landsbyggðinni.
Vinnustaðaklasar eru samnýtt vinnurými þar sem einstaklingar og fyrirtæki geta nýtt sameiginlega aðstöðu. Uppbygging þeirra getur auðveldað fólki að sinna störfum óháð staðsetningu og skapað vettvang fyrir samstarf og nýsköpun.





