Sigmundur dæmdi sinn 2500. leik
Körfuknattleiksdómarinn Sigmundur Már Herbertsson dæmdi sinn 2500. leik á Sauðárkróki í gærkvöldi þegar heimamenn mættu ÍR.
„Ég byrjaði að dæma árið 1994 og ennþá er jafn gaman að vera á gólfinu. Á ferlinum hafa verið ógleymanleg augnablik. Vonandi verða þau bara miklu fleiri! Kvöldið í kvöld var einnig sérstakt þar sem leikurinn var góðgerðarleikur til styrktar Einstökum börnum. 2.500 leikir – og við höldum áfram,“ sagði Simmi í Facebook færslu eftir leikinn,
Njarðvíkingurinn er leikjahæsti dómari landsins en og sá besti því hann hefur 17. sinnum verið valin dómari ársins, síðast tímabilið 2025-2026.
Víkurfréttir ræddu við Simma fyrr á árinu.






