Flottir sigrar hjá Keflavík og Grindavík
Keflvíkingar unnu sinn fjórða sigur og Grindvíkingar sinn þriðja í fimmtu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta. Bæði lið unnu sínar viðureignir í kvöld.
Keflvíkingar heimsóttu ÍR í Breiðholtið og unnu góðan sigur í sveiflukenndum leik. Keflavík náði afgerandi forystu í blábyrjun en heimamenn komu til baka allhressilega og voru bara tveimur stigum undir eftir fyrsta leikhluta, 22-24. Heimamenn unnu næsta með tólf stigum 28-16 og leiddu með tíu stigum í hálfleik, 50-40. Keflvíkingar mættu hressir til baka og unnu þriðja leikhluta líka með tólf stigum þannig að allt var í járnum fyrir lokaleikhlutann. Áfram var jafnt og Keflavík leiddi með þremur stigum þegar tvær mínútur voru eftir. Keflavík var sterkara liðið í lokin og tryggði sér tíu stiga sigur, 90-100. Keflvíkingar léku með nýjan liðsmann, Ali Abdou Dibba, sem skilaði þremur stigum.
Grindvíkingar unnu sinn þriðja sigur í röð nokkuð örugglega 81-100 eftir að hafa lent níu stigum undir í fyrsta leikhluta. Þeir unnu næstu þrjá leikhluta og leikinn örugglega. Grindvíkingar eru búnir að endurheimta alla leikmenn frá meiðslum nema Óla fyrirliða og eru til alls líklegir. Unnsteinn Kárason var stigahæstur með tuttugu stig.
ÍR-Keflavík 90-100 (22-24, 28-16, 17-29, 23-31)
ÍR: Jarrett Bryant 27/5 fráköst, Kevin Kone 20/8 fráköst, Dani Koljanin 14/8 fráköst/8 stoðsendingar, Kristján Fannar Ingólfsson 14, Montez Mathis 9/7 fráköst, Tómas Orri Hjálmarsson 3, Aron Orri Hilmarsson 3, Þorgrímur Starri Halldórsson 0, Frank Gerritsen 0, Hannes Gunnlaugsson 0, Sigurþór Hjörleifsson 0, Þorsteinn Bjarni Arnarsson 0.
Keflavík: Jamir Chaplin 31/13 fráköst, Jaka Brodnik 19, Bragi Guðmundsson 18/5 fráköst/5 stolnir, Robertas Jonaitis 14/8 fráköst, Jordan Kevin Williams 8/6 fráköst, Hilmar Pétursson 7/4 fráköst/14 stoðsendingar, Ali Abdou Dibba 3, Viktor Magni Sigurðsson 0, Jökull Ólafsson 0, Jakob Máni Magnússon 0, Frosti Sigurðarson 0, Eyþór Lár Bárðarson 0.
Ármann-Grindavík 81-100 (29-20, 11-28, 20-29, 21-23)
Ármann: Kinyon Hodges 23, Styrmir Jónasson 15, Arnaldur Grímsson 15/4 fráköst, Jóel Fannar Jónsson 8, Jakob Leifur Kristbjarnarson 8, Ingvi Þór Guðmundsson 4/5 stoðsendingar, Zarko Jukic 4/5 fráköst, Kári Kaldal 2, Adam Johansson 2/5 fráköst/6 stoðsendingar, Ísak Örn Baldursson 0, Valur Kári Eiðsson 0.
Grindavík: Unnsteinn Rúnar Kárason 20, Jeremy Raymon Pargo 16, Deandre Donte Kane 15/8 fráköst, Mirza Bulic 13/14 fráköst, Arnór Tristan Helgason 10/4 fráköst, Daniel Mortensen 9/7 fráköst, Ragnar Örn Bragason 7, Kristófer Breki Gylfason 5/4 fráköst, Nökkvi Már Nökkvason 3, Valur Orri Valsson 2/5 fráköst, Patrekur Atlason 0, Jason Helgi Ragnarsson 0.







