Íþróttir

Marc McAusland tekur við Njarðvíkingum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 1. nóvember 2026 kl. 15:46

Marc McAusland tekur við Njarðvíkingum

Marc McAusland hefur verið ráðinn næsti þjálfari hjá Lengjudeildarliði UMFN í knattspyrnu karla til næstu þriggja ára, eða út keppnistímabilið 2029.

Marc á glæsilegan feril sem leikmaður St. Mirren í Skotlandi, með Keflavík, Grindavík, ÍR og nú síðast Víði Garði á Íslandi. Marc var fyrirliði UMFN 2020-2023. Hann lék 105 leiki fyrir Njarðvík og skoraði 19 mörk en Marc er mikill leiðtogi og hefur ætíð verið fyrirliði sama hvert hann fer.

Marc er með UEFA A-gráðu og hefur áður þjálfað yngri flokka hjá Njarðvík, auk þess að hafa verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks fyrsta tímabilið sitt hjá Njarðvík en Marc tekur nú við sem þjálfari meistaraflokks karla og bindur stjórn Knattspyrnudeildar Njarðvíkur miklar vonir við ráðninguna að því er segir í tilkynningu frá félaginu.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Njarðvíkingar komust í úrslitakeppni efri hluta Lengjudeildarinnar síðustu tvær leiktíðir en duttu úr í bæði skiptin í undanúrslitum.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100