FIT
FIT

Fréttir

Um 2,7 milljarðar eftir í skólana og vilja hraða verklokum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 30. október 2026 kl. 10:42

Um 2,7 milljarðar eftir í skólana og vilja hraða verklokum

Um 2,7 milljarðar króna eru eftir í framkvæmdir við Holtaskóla og Myllubakkaskóla samkvæmt upplýsingum sem Kristján Pétur Kristjánsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, kynnti í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Hann taldi að þrjú til þrjú og hálft ár gæti tekið að ljúka verkefnunum miðað við þær áætlanir sem unnið væri eftir og hvatti til þess að fundnar yrðu leiðir til að klára fyrr.

Þrátt fyrir ágreining um fjárheimildir framkvæmdanna lýstu fulltrúar úr bæði meiri- og minnihluta vilja til að ljúka skólaverkefnunum sem fyrst. Ágreiningurinn snerist um framkvæmdahraða, fjármögnun og hvernig afla ætti heimilda fyrir auknum útgjöldum innan ársins.

Ekki tilbúinn að bíða í fleiri ár

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Kristján Pétur sagðist vilja koma verkefnunum af framkvæmdalista bæjarins svo hægt yrði að beina kröftunum að öðrum brýnum verkefnum. Hann væri ekki tilbúinn að sætta sig við að framkvæmdirnar drægjust í þrjú og hálft eða fjögur ár til viðbótar.

Hann lagði ekki fram fullmótaða fjármögnunarleið en kallaði eftir sameiginlegri vinnu bæjarstjórnar, bæjarráðs og viðkomandi fagráða. Markmiðið væri að finna hvort og hvernig hægt yrði að flýta verklokum í þágu nemenda og starfsfólks.

Guðný Birna Guðmundsdóttir, oddviti Samfylkingar, sagði fyrri meirihluta einnig hafa viljað ljúka verkunum hraðar. Fjárhagslegt svigrúm hefði hins vegar ráðið framkvæmdahraðanum. Hún sagði bæinn hafa tekið viðbótarlán og sett skólana í forgang umfram önnur verkefni.

Skólastarfið komið inn en frístund bíður

Í umræðunni kom fram að nemendur væru komnir inn í skólana tvo. Guðný Birna sagði þó frístundastarf Holtaskóla enn vera í tímabundnu húsnæði og að svo yrði áfram næsta árið.

Hún lýsti álaginu sem fylgt hefði því að finna húsnæði fyrir nemendur og starfsfólk meðan byggingarnar voru teknar í gegn. Börn hefðu meðal annars farið á mis við að halda árshátíð í eigin skóla.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100