Hörku nágrannaslagur B-liðanna sem Njarðvík vann
Keflavík og Njarðvík eru bæði með b-lið í keppni 1. deildar kvenna í körfubolta. Liðin áttust við í gær í nágrannaslag í IceMar höllinni í Njarðvík þar sem heimakonur höfðu betur í spennandi leik 92-88.
Keflavíkurkonur byrjuðu betur í fyrsta leikhluta en heimakonur svöruðu fyrir sig og í hálfleik var jafnt á með liðunum, 46-46.
Spennan hélt áfram en Njarðvík vann síðasta leikhlutann í mjög litlu stigaskori 11-7 og það var einmitt munurinn á liðunum í lokin, fjögur stig, 92-88.
Í báðum liðum eru leikmenn sem eru iðulega í hópi hjá Bónus-deildarliðum sínum og aðrar sem bíða eftir tækifærinu.
Kristín Björk Guðjónsdóttir fór mikinn hjá Njarðvík og skoraði 25 stig, tók 9 fráköst og gaf 5 stoðsendingar auk þess að stela fimm boltum. Dagbjört Dóra Kristmannsdóttir skoraði 19 stig/5 fráköst. Hjá Keflavík var Ásdís Elva Jónsdóttir stigahæst með 17/7 stoðsendiar og Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir var með 16 stig.
Njardvik b-Keflavík b 92-88 (21-26, 25-20, 16-19, 19-16, 11-7)
Njardvik b: Kristín Björk Guðjónsdóttir 25/9 fráköst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Dagbjort Dora Kristmannsdottir 19/5 fráköst, Aníta Rut Helgadóttir 16/8 fráköst/6 stolnir, Harpa Ros Ivarsdottir 13/4 fráköst/5 stolnir, Karen Osk Luthersdottir 9, Þorgerður Tinna Kristinsdóttir 4/4 fráköst, Rósa Kristín Jónsdóttir 4/7 fráköst, Margret Ros Vilhjalmsdottir 2, Nína Björk Guðjónsdóttir 0, Emma Ástrós Gunnarsdóttir 0, Elísabet Agla Vilhjálmsdóttir 0, Lilja Valberg 0.
Keflavík b: Ásdís Elva Jónsdóttir 17/7 stoðsendingar, Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir 16, Lísbet Lóa Sigfúsdóttir 13, Oddný Hulda Einarsdóttir 11/9 fráköst/9 stolnir, Erna Ósk Snorradóttir 11/9 fráköst, Heiðrún Lind Sævarsdóttir 10, Rut Páldís Eiðsdóttir 5/10 fráköst, Veiga Dís Halldórsdóttir 3, Telma Lind Hákonardóttir 2/6 fráköst, Arnina Lena Runarsdottir 0, Ásthildur Eva H. Olsen 0, Erna Ósk Leifsdóttir 0.
Dómarar: Jón Svan Sverrisson, Joel Estrada
Áhorfendur: 100.
Staða:
1 Selfoss 5 4 1 437 - 331 8
2 Þór Þ. 4 3 1 342 - 297 6
3 Þór Ak. 4 3 1 362 - 273 6
4 Keflavík b 4 3 1 325 - 304 6
5 Haukar 5 3 2 359 - 342 6
6 Aþena 5 2 3 325 - 380 4
7 Njardvik b 4 2 2 302 - 297 4
8 Breiðablik 4 2 2 285 - 283 4
9 KV 4 1 3 272 - 286 2
10 ÍR 4 1 3 243 - 329 2
11 Skallagrímur 5 0 5 317 - 447 0





