Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi
Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi

Íþróttir

Eiður Orri og Anita Lind leikmenn ársins hjá Keflavík
Þriðjudagur 27. október 2026 kl. 15:09

Eiður Orri og Anita Lind leikmenn ársins hjá Keflavík

Eiður Orri Ragnarsson og Anita Lind Daníelsdóttir voru valin bestu leikmenn meistaraflokka karla og kvenna hjá Keflavík að mati samherja sinna. Keflvíkingar fögnuðu að lokinni knattspyrnutíð í lokahófi knattspyrnudeildar Keflavíkur í Bluehöllinni laugardaginn 24. október. Þar komu leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar saman til að gera upp knattspyrnuárið 2026.

Fjöldi viðurkenninga var veittur fyrir góðan árangur og framlag til félagsins. Björgvin Björgvinsson fékk viðurkenningu sem þjálfari ársins.

Ariela Lewis hlaut gullskó kvennaliðsins með 13 mörk og Stefan Alexander Ljubicic gullskó karlaliðsins með 12 mörk. Margrét Viktoría Harðardóttir og Þorlákur Breki Þórarinsson Baxter voru valin efnilegustu leikmenn meistaraflokkanna.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Hilda Rún Hafsteinsdóttir hlaut verðlaun fyrir mark ársins hjá konunum, gegn Gróttu, en Alpha Bedor Conteh hjá körlunum fyrir sigurmark sitt gegn KR.

Í 2. flokki voru Viktor Árni Traustason og Ragnheiður Júlía Rafnsdóttir valin leikmenn ársins. Arnór Atli Aðalbjörnsson og Guðlaug Emma Kristinsdóttir hlutu viðurkenningar sem efnilegustu leikmennirnir.

Sérstök stund kvöldsins var þegar Frans Elvarsson var heiðraður fyrir einstakt framlag sitt til Keflavíkur. Frans hefur leikið hátt í 400 leiki fyrir félagið á sextán tímabilum og er leikjahæsti leikmaður í sögu Keflavíkur.

Einnig voru leikmenn sem kveðja félagið heiðraðir, ásamt útskriftarhópi annars flokks. Þá fengu fjölmargir leikmenn viðurkenningar fyrir leikjafjölda sinn

Sjálfboðaliðum félagsins voru jafnframt færðar sérstakar þakkir fyrir ómetanlegt starf á tímabilinu.

Lokahófið markaði þannig lok viðburðaríks knattspyrnuárs þar sem karlaliðið tryggði sér sæti í efri hluta Bestu deildarinnar og félagið fagnaði árangri, samstöðu og öflugu starfi innan sinna raða.

Sjá myndasafn hér að neðan. Myndir/Keflavík-JPK.

Björgvin Björgvinsson var valinn þjálfari ársins en hann er hér með Haraldi þjálfara meistaraflokks.

Bílakjarninn
Bílakjarninn