Hviða
Hviða

Íþróttir

Sex leikmenn frá Suðurnesjaliðum í kvennalandsliðinu í körfubolta
Helena Rafnsdóttir úr Njarðvík og Anna Ingunn Svansdóttir úr Keflavík eru í landsliðshópnum. VF/hilmarbragi.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 24. október 2026 kl. 11:00

Sex leikmenn frá Suðurnesjaliðum í kvennalandsliðinu í körfubolta

Sex leikmenn frá Keflavík, Njarðvík og Grindavík eru í 15 manna leikmannahópi A-landsliðs kvenna í körfuknattleik sem hefur verið valinn fyrir landsliðsgluggann í nóvember. Njarðvík á flesta fulltrúa Suðurnesjaliðanna, eða þrjá, Keflavík á tvo og Grindavík einn.

Pekka Salminen, landsliðsþjálfari kvenna, hefur valið 15 leikmenn fyrir verkefni íslenska landsliðsins í nóvember 2026. Suðurnesjaliðin eiga þar sex fulltrúa og eru leikmennirnir með misjafna reynslu af landsliðsverkefnum.

Frá Njarðvík koma Ásta Júlía Grímsdóttir, sem hefur leikið 18 A-landsleiki, Emma Theódórsson með tvo landsleiki og Helena Rafnsdóttir, sem hefur leikið þrjá landsleiki.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Keflavík á tvo fulltrúa í hópnum, þær Thelmu Dís Ágústsdóttur, sem hefur leikið 29 landsleiki, og Önnu Ingunni Svansdóttur, sem á að baki 20 landsleiki.

Frá Grindavík kemur Isabella Ósk Sigurðardóttir, sem hefur leikið 19 landsleiki fyrir Íslands hönd.

Þessir sex leikmenn hafa samtals leikið 91 A-landsleik.

Sara Rún reynslumest – einn nýliði

Keflvíkingurinn Sara Rún Hinriksdóttir, nú leikmaður KR, er reynslumest í hópnum með 38 A-landsleiki. Þar á eftir kemur Thelma Dís Ágústsdóttir úr Keflavík með 29 landsleiki.

Einn nýliði er í hópnum, Darina Andriivna Khomenska, sem leikur með Aþenu.

Pekka Salminen stýrir landsliðinu en aðstoðarþjálfarar hans eru Daníel Andri Halldórsson og Jamil Abiad. Arnór Gauti Ragnarsson er styrktarþjálfari liðsins.

Landsliðshópur Íslands í nóvember

  • Anna Ingunn Svansdóttir – Keflavík (20 landsleikir)

  • Ásta Júlía Grímsdóttir – Njarðvík (18)

  • Berglind Katla Hlynsdóttir – Bandaríkin (2)

  • Darina Andriivna Khomenska – Aþena (nýliði)

  • Diljá Ögn Lárusdóttir – Stjarnan (11)

  • Emma Theódórsson – Njarðvík (2)

  • Eva Wium Elíasdóttir – Stjarnan (9)

  • Helena Rafnsdóttir – Njarðvík (3)

  • Isabella Ósk Sigurðardóttir – Grindavík (19)

  • Kristrún Ríkey Ólafsdóttir – KR (7)

  • Rebekka Rut Steingrímsdóttir – KR (6)

  • Sara Rún Hinriksdóttir – KR (38)

  • Sigrún Björg Ólafsdóttir – Haukar (13)

  • Thelma Dís Ágústsdóttir – Keflavík (29)

  • Þóranna Kika Hodge-Carr – Valur (11)

Bílakjarninn
Bílakjarninn