Sú sænska skoraði þriðjung stiga Grindavíkur í sigri á Keflavík
Grindvík er með fullt hús stiga og trónir á toppi Bónus-deildar kvenna í körfubolta eftir sigur á Keflavík í HS Orku höllinni í Grindavík í fjórðu umferð. Þær grindvísku unnu nokkuð öruggan fjórtán stiga sigur þar sem hin sænska Ellen Nystrom fór á kostum og skoraði þriðjung stiga Grindvíkinga.
Heimakonur náðu strax yfirhöndinni í fyrsta leikhluta sem þær unnu 31-21 og Keflvíkingum tókst aldrei að brúa þann mun. Grindvík leiddi með ellefu stigum í hálfleik 50-39 og tólf stigum eftir þriðja leikhluta. Lokatölur urðu 89-75.
Ellen Nystrom fór mikinn og leiddi leik heimakvenna, skoraði 31 stig og tók 15 fráköst. Farhiya Abdi var að venju atkvæðamikil og skoraði 24 stig. Liðið er vel skipað og sterkt og ekki annað að sjá á leik þess að UMFG verður í toppbaráttunni í vetur.
Hjá Keflavík var Amaiquen Sicliano með 24 stsig og Thelma Dís Ágústsdóttir með 15 stig og 7 fráköst. Hin bandaríska Hannah Little skoraði aðeins 6 stig en tók 9 fráköst. Þessi stelpa hefur ekki náð sér á strik nema í einum leik í haust og þarf að gera betur. Keflavíkurkonur sýndu ágæta spretti en réðu ekki við sterka Grindvíkinga.
Grindavík-Keflavík 89-75 (31-21, 19-18, 18-17, 21-19)
Grindavík: Ellen Nystrom 31/15 fráköst, Farhiya Abdi 24/6 fráköst, Tegan Graham 11/5 fráköst, Hulda Björk Ólafsdóttir 10/7 fráköst, Abby Claire Beeman 8/13 stoðsendingar, Ólöf Rún Óladóttir 3, Ólöf María Bergvinsdóttir 2, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 0.
Keflavík: Amaiquen Siciliano 24/5 stoðsendingar, Thelma Dís Ágústsdóttir 15/7 fráköst, Anna Lára Vignisdóttir 12/4 fráköst, Anna Ingunn Svansdóttir 9, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 8/5 fráköst, Hannah Little 6/9 fráköst, Hanna Gróa Halldórsdóttir 1, Telma Lind Hákonardóttir 0, Oddný Hulda Einarsdóttir 0, Lísbet Lóa Sigfúsdóttir 0, Ásdís Lilja Guðjónsdóttir 0, Ásdís Elva Jónsdóttir 0.








