Víðismenn unnu fyrsta leikhlutann gegn Njarðvík en það dugði skammt
Víðismenn mættu úrvalsdeildarliði UMFN í 32 liða úrslitum VÍS bikar karla í körfubolta og fór leikurinn fram í Íþróttahúsi Keflavíkur að viðstöddum 250 áhorfendum. Njarðvíkingar unnu öruggan sigur 60-100 en Víðismenn eru nýliðar í körfubolta og keppa í 2. deild.
Víðismenn unnu fyrsta leikhlutann gegn Njarðvíkingum 25-23 en þá settu þeir grænu í auka gír og unnu tvo næstu leikhluta með miklum yfirburðum. Síðasti leikhluti var síðan mjög jafn. Lokatölur 62-100.
Víðismenn tefla fram liði í 2. deild en það gera líka Reynir Sandgerði og Njarðvík er með u-lið þar líka. Það má því búast við skemmtilegum viðureignum á parketinu í vetur.
Víðir-Njarðvík 62-100 (25-23, 7-29, 10-27, 20-21)
Víðir: Jakob Máni Magnússon 11/6 fráköst, Frosti Sigurðarson 11/5 fráköst, Daniel Eric Ottesen Clarke 9/5 fráköst, Sigurður Karl Guðnason 6, Viktor Magni Sigurðsson 5, Arnór Sveinsson 5/6 fráköst, Dagur Stefán Örvarsson 4/6 fráköst, Arnór Steinn Leifsson 3/4 fráköst, Árni Dagur Kristjánsson 2, Davíð Breki Antonsson 2, Jökull Ólafsson 2, Pétur Harðarson 2.
Njarðvík: Aleksa Ilic 19/10 fráköst, Brynjar Kári Gunnarsson 16/4 fráköst, Hugi Hallgrimsson 12/13 fráköst, Almar Orri Jónsson 10/5 stolnir, Fotios Lampropoulos 10/12 fráköst, Isaiah Coddon 10, Snjólfur Marel Stefánsson 8/9 fráköst, Ómar Orri Gíslason 8, Logi Örn Logason 4, Bóas Orri Unnarsson 3.
Dómarar: Arvydas Kripas, Tomas Blauzdziunas
Áhorfendur: 250.









