Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Fréttir

Minnihlutinn segir fjárhagsáætlunarvinnu hafa farið fram án sín
Oddvitar minnihlutaflokkanna í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, Guðný Birna og Halldóra Fríða koma til bæjarstjórnarfundar. VF/pket.
Sunnudagur 18. október 2026 kl. 04:51

Minnihlutinn segir fjárhagsáætlunarvinnu hafa farið fram án sín

Guðný Birna Guðmundsdóttir, oddviti Samfylkingar gagnrýndi harðlega stöðu fjárhagsáætlunar Reykjanesbæjar fyrir árið 2027 á bæjarstjórnarfundi 6. október. Hún sagði samþykkta tímaáætlun ekki hafa staðist og minnihlutann skorta gögn og raunverulega aðkomu. Bæjarstjóri hafnaði því að upplýsingum væri haldið undan og sagði breytt vinnubrögð skýra lengri undirbúning.

Guðný Birna hafði óskað eftir að fjárhagsáætlun 2027 til 2030 yrði sérstaklega tekin á dagskrá. Hún sagði kjörna fulltrúa bera ábyrgð á áætluninni þótt þeir væru í minnihluta og því þurfa aðgang að forsendum, gjaldskrám og fyrirhugaðri forgangsröðun.

Hún rakti tímaáætlun sem bæjarráð hefði samþykkt 9. júlí. Samkvæmt henni hefði átt að leggja helstu forsendur fyrir ráðið í ágúst og taka þá ákvörðun um markmið og stefnu. Í lok ágúst hefðu áætlaðar skatttekjur átt að liggja fyrir og fagráðin að hefja rýni á gjaldskrám.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Um miðjan september hefði átt að leggja fram tillögu um skiptingu ráðstöfunarfjár, fjárhagsramma og lokaforsendur tekjuáætlunar. Tillaga að framkvæmdum næsta árs hefði einnig átt að vera kynnt í ágúst.

Guðný Birna sagði aðeins eitt þessara atriða hafa staðist: fjármálastjóri hefði lagt fram tekjuáætlun í ágúst. Önnur lykilgögn hefðu ekki verið afhent. Hún sagði fyrstu tölulegu gögnin sem minnihlutinn sæi nú birtast í fagráðum, áður en bæjarráð hefði fengið heildstæða yfirferð.

Formaður bæjarráðs viðurkennir að betur hefði mátt standa að verki

Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokksins og formaður bæjarráðs þakkaði fyrir fyrirspurnina. Hann sagði drög að tekjuáætlun hafa komið á tilsettum tíma en sennilega hefði átt að fá fjármálastjóra fyrr inn á fundi ráðsins. Ekki hefði tekist að fylgja upphaflegri áætlun nægilega vel.

Hann sagði uppfærða tímaáætlun væntanlega í bæjarráð daginn eftir og að formleg svör við fyrirspurnum kæmu vonandi eftir um viku. Mikil vinna væri í gangi, meðal annars við að útskýra og innleiða núllgrunnsnálgunina.

Bæjarstjóri sagði sviðsstjóra þá vera að skila fyrstu drögum. Meiri rökstuðningur og gagnagreining hefði tafið ferlið en nægur tími væri enn til fyrri umræðu fjárhagsáætlunar. Enginn feluleikur væri í gangi og staða vinnunnar hefði verið rædd bæði formlega og óformlega.

Sameiginlegur fundur boðaður

Í umræðunni kom fram að fundarboð hefði verið sent vegna fundar með sviðsstjórum næsta þriðjudag, 13. október. Bæjarstjóri sagði fundinn hafa verið boðaðan þegar ljóst varð hvenær öll gögn til kynningar yrðu komin.

Guðný Birna sagði það ekki jafngilda afhendingu fjárhagsgagna að upplýsa minnihlutann um að vinna væri í gangi. Hún sagði minnihlutann þurfa að ræða hvort og hvernig hann gæti tekið þátt á þessum tímapunkti.

Alexander Ragnarsson, Sjálfstæðisflokki, sagðist ekki hafa verið kallaður mikið til vinnu við fjárhagsáætlun árið áður. Hann hefði sótt einn fund og gögnum hefði verið deilt með honum 3. nóvember 2025.

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, oddviti Framsóknar, mótmælti þeirri mynd að vinnan hefði fyrst hafist í nóvember. Hún vísaði til bæjarráðsfundar 28. ágúst 2025 þar sem tekjuáætlun, sviðsmyndir um fasteignaskatta og minnisblað um fjárhagsramma hefðu legið fyrir. Hún sagði fundi hafa verið tíða í framhaldinu og að gögnin í nóvember hefðu verið afrakstur þeirrar vinnu.

Guðný Birna óskaði eftir formlegum svörum um stöðu tekjuáætlunar, gjaldskrár, núllgrunnsvinnu og fjárfestinga næsta árs. Sérstaklega þyrfti að sýna hvernig frávik í skólaframkvæmdum og viðauki til áramóta hefðu áhrif á forgangsröðun ársins 2027.

Bílakjarninn
Bílakjarninn