Hviða
Hviða

Fréttir

Hviða vill efla fyrirtæki og fjölga atvinnutækifærum á Suðurnesjum
Litla brugghúsið er meðal fyrirtækja sesm Hviða hefur stutt. VF/pket.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 17. október 2026 kl. 12:27

Hviða vill efla fyrirtæki og fjölga atvinnutækifærum á Suðurnesjum

Byggðastofnun og Reykjanesbær eru stærstu eigendur fjárfestingarfélagsins

Hviða fjárfestingarfélag leggur áherslu á fjárfestingar í fyrirtækjum og verkefnum á Suðurnesjum sem eru í vexti eða hyggjast ráðast í ný verkefni. Félagið getur komið að fjármögnun með hlutafé, lánum eða hvoru tveggja. Þetta kom fram í kynningu Snjólaugar K. Jakobsdóttur framkvæmdastjóra á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Hviða er fjárfestir og samstarfsaðili fyrirtækja en ekki styrktarsjóður. Samkvæmt kynningunni fara umsóknir í mat áður en ákvörðun er tekin um fjárfestingu og félagið fylgir verkefnum eftir. Markmiðið er að styðja vöxt fyrirtækja, auka fjölbreytni atvinnulífsins og skapa fleiri atvinnutækifæri á svæðinu.

Byggðastofnun stærsti eigandinn

Byggðastofnun á 36,70% í Hviðu og Reykjanesbær 28,91%. Þriðji stærsti eigandinn er Festa lífeyrissjóður með 17,70%. Saman eiga þessir þrír aðilar 83,31% félagsins.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Grindavíkurbær á 5,35% og Sveitarfélagið Vogar 1,61%. Á eigendalista kynningarinnar eru jafnframt skráðir hlutir á nöfn Sandgerðisbæjar, 3,16%, og Gerðahrepps, 2,66%. Landsbankinn – Vatnsafl ehf. er skráður fyrir 3,79% og aðrir eigendur fyrir 0,13%.

Fjölbreytt fyrirtæki í fjárfestingasafninu

Í kynningunni eru tólf fyrirtæki nefnd sem dæmi um fjárfestingar sem Hviða hefur komið að. Þar á meðal eru Bioeffect, DMM Lausnir, GeoSilica, Taramar, Kaffi Gola, Litla Brugghúsið, Matorka, Garðskagi, ORF Líftækni, Opus Futura, Skipasmíðastöð Njarðvíkur og Arctic Sea Minerals.

Fjárfestingarnar ná þannig til ólíkra greina atvinnulífsins. Kynningin tilgreinir ekki fjárhæðir einstakra fjárfestinga eða eignarhlut Hviðu í fyrirtækjunum. Hugmyndin að baki starfseminni er að fé sem skilar sér til baka úr fjárfestingum geti nýst aftur til uppbyggingar fyrirtækja á Suðurnesjum.

Hviða auglýsir nú eftir umsóknum sem sjá má hér. 

Bílakjarninn
Bílakjarninn