Hviða
Hviða

Fréttir

Undirbúa útboð um starfsemi í Hópinu
Laugardagur 17. október 2026 kl. 04:10

Undirbúa útboð um starfsemi í Hópinu

Grindavíkurbær hefur hafið markaðskönnun vegna mögulegrar framtíðarnýtingar Hópsins í Grindavík, þar sem horft er til uppbyggingar sýningar- og ferðaþjónustu með áherslu á einstök ummerki náttúruhamfaranna.

Markmið könnunarinnar er að kanna áhuga fjárfesta og markaðsaðila og kalla eftir hugmyndum um hvernig nýta megi svæðið til framtíðar, meðal annars í tengslum við ferðaþjónustu, miðlun sögu og náttúruöflin sem hafa mótað Grindavík á undanförnum árum.

Um er að ræða markaðskönnun en ekki formlegt útboð. Niðurstöðurnar verða nýttar til að meta möguleika á frekari uppbyggingu og móta næstu skref verkefnisins.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Frestur til að skila inn upplýsingum og hugmyndum er til 24. nóvember 2026.

Nánari upplýsingar má finna hér: https://www.grindavik.is/gagnatorg/frettir-og-tilkynningar/markadskonnun-um-uppbyggingu-syningar-og-ferdathjonustu-i-hopinu

Bílakjarninn
Bílakjarninn