Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Fréttir

KSK eignir kaupa Nesvelli af Reykjanesbæ – fjárfesting á heimavelli
Frá undirritun kaupsamningsins, f.v. Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri,
Föstudagur 16. október 2026 kl. 04:22

KSK eignir kaupa Nesvelli af Reykjanesbæ – fjárfesting á heimavelli

KSK eignir ehf., dótturfélag Kaupfélags Suðurnesja (KSK), hefur keypt fasteignina að Njarðarvöllum 2 af Reykjanesbæ, þar sem hjúkrunarheimilið Nesvellir er starfrækt. Kaupin marka mikilvægt skref í þeirri stefnu KSK eigna og móðurfélagsins, Kaupfélags Suðurnesja, að leggja aukna áherslu á fjárfestingar á Suðurnesjum.

Í tillkynningu frá Reykjanesbæ segir að þetta séu jafnframt ánægjuleg tíðindi fyrir Reykjanesbæ, enda sé kaupandinn rótgróið fyrirtæki úr nærsamfélaginu sem hefur um áratugaskeið verið hluti af atvinnulífi og uppbyggingu svæðisins.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Í fasteigninni að Njarðarvöllum 2 rekur Hrafnista hjúkrunarheimili með 60 hjúkrunarrýmum. Um er að ræða mikilvæga samfélagslega starfsemi sem gegnir lykilhlutverki í þjónustu við aldraða í Reykjanesbæ og á Suðurnesjum. Kaupin fela eingöngu í sér eigendaskipti á fasteigninni og hafa ekki áhrif á núverandi rekstur hjúkrunarheimilisins, sem áfram verður í höndum Hrafnistu. Fasteignin var tekin í notkun árið 2014 og er vönduð og vel búin til þeirrar starfsemi sem þar fer fram.

„Við erum afar ánægð með kaupin á Nesvöllum. Þau falla mjög vel að þeirri stefnu okkar að beina fjárfestingum KSK eigna í auknum mæli að okkar heimasvæði. KSK á sterkar rætur á Suðurnesjum og okkur finnst mikilvægt að geta fjárfest hér heima og þannig lagt okkar af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar samfélagsins,“ segir Brynjar Steinarsson, framkvæmdastjóri KSK eigna.

Ánægjulegt að heimamenn fjárfesti í eigin samfélagi

Reykjanesbær fagnar því að kaupandi fasteignarinnar sé fyrirtæki sem á rætur sínar í samfélaginu og hefur sýnt í verki vilja til að fjárfesta í uppbyggingu Suðurnesja.

„Það eru afar ánægjuleg tíðindi að KSK eignir, dótturfélag hins rótgróna Kaupfélags Suðurnesja, skuli fjárfesta í þessari mikilvægu fasteign hér í Reykjanesbæ. Það skiptir miklu máli fyrir samfélagið okkar að hér séu sterk fyrirtæki sem hafa trú á svæðinu, vilja fjárfesta hér og taka þátt í uppbyggingunni til framtíðar. KSK hefur verið samofið atvinnulífi og sögu Suðurnesja um langt skeið og það er sérstaklega ánægjulegt að sjá félagið halda áfram að styrkja tengsl sín við heimabyggðina með þessum hætti. Við fögnum þessum viðskiptum og óskum KSK eignum til hamingju með kaupin,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.

Mikilvæg samfélagsleg starfsemi til framtíðar

Meginstarfsemi KSK eigna er þróun, eignarhald og útleiga fasteigna. Félagið leggur áherslu á traust, gæði, árangur og samvinnu. Kaupin á Nesvöllum endurspegla þá stefnu félagsins að fjárfesta til langs tíma í fasteignum sem skapa verðmæti og styðja við öflugt atvinnu- og samfélagslíf.

„Það hefur sérstakt vægi fyrir okkur að fjárfestingin sé ekki aðeins góð viðbót við fasteignasafn KSK eigna heldur hýsi fasteignin jafnframt mikilvæga þjónustu fyrir íbúa svæðisins. Þetta er langtímafjárfesting og við hlökkum til samstarfsins við Hrafnistu. Við munum leggja ríka áherslu á að vera traustur og góður fasteignaeigandi og skapa góðar forsendur fyrir áframhaldandi farsælu samstarfi,“ segir Brynjar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn