Safnahelgi
Safnahelgi

Íþróttir

Nýr samstarfssamningur og nýtt merki RKVN
Fimmtudagur 15. október 2026 kl. 11:24

Nýr samstarfssamningur og nýtt merki RKVN

Í vikunni undirrituðu Keflavík, Njarðvík, Reynir og Víðir nýjan samstarfssamning um RKVN-samstarfið sem gildir næstu 4 árin og nær til 5., 4., 3. og 2. flokks kvenna í knattspyrnu. RKV-samstarfið var stofnað árið 2013 og var því 10 ára árið 2023 þegar Njarðvík gekk inn í samstarfið og styrkti það enn frekar og RKVN hefur því verið til í 3 ár.

Á þessum þremur árum hefur samstarfið gengið mjög vel og RKVN er nú meðal fjölmennustu félaga landsins í þessum flokkum og fjöldinn hefur haldist stöðugur. Í sumar kom fyrsti Íslandsmeistaratitill RKVN en stelpurnar í A-liði 5. flokks kvenna urðu Íslandsmeistarar í byrjun september. Árangur samstarfsins er þó ekki mældur í titlum eða bikurum heldur fyrst og fremst í fjölda stelpna sem eru að æfa, metnaði í þjálfun, framförum og gleði iðkenda og þeirri tengingu sem hefur myndast milli stelpna frá mismunandi svæðum Suðurnesja.

Í tilefni undirritunar á nýja samningnum var kynntur nýr búningur RKVN og nýtt merki sem hannað var af Halldóri Smára Sigurðssyni. Það er skýr vilji allra félaganna að skapa flotta ímynd RKVN sem styrkir þeirra sérstöðu en þó með sterka tengingu í öll félögin sem standa að baki.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Halldór Smári fékk innblástur að hönnun merkisins frá gömlu lógói Sportvíkur sem var íþróttavöruverslun sem þjónustaði Suðurnesjamenn um árabil. Lógóið samanstendur af 19. aldar leðurbolta og fjögurra tinda kórónu sem táknar liðin fjögur sem standa að baki RKVN.

„Félögin eru virkilega stolt af nýrri ásýnd RKVN og hlakka til að halda áfram að gera vel fyrir fótboltastelpur á Suðurnesjum,“ segir í tilkynningu frá RKVN.

+

Bílakjarninn
Bílakjarninn