Kadeco
Kadeco

Íþróttir

Keflavík tapaði í Kópavogi
Eiður Orri Ragnarsson (23) skoraði mark Keflvíkinga gegn Blikum. VF/hilmarbragi.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 11. október 2026 kl. 21:22

Keflavík tapaði í Kópavogi

Keflvíkingar töpuðu fyrir Blikum í úrslitakeppni efri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu í Kópavogi í kvöld. Lokatölur 3-1 fyrir heimamenn.

Blikar léku undan vindinum í fyrri hálfleik og uppskáru eitt mark á 18. mínútu. Heimamenn voru meira með boltann en fengu fá marktækifæri. Keflvíkingar áttu góðar skyndisóknir og fátt markvert gerðist í fyrri hálfleiknum. 

Keflvíkingar byrjuðu seinni hálfleik með látum og voru mun betri aðilinn. Eftir nokkrar góðar sóknir þar sem Keflvíkingar áttu tvö stangarskot og fleiri góð marktækifæri fengu þeir hins vegar mark í andlitið þegar Blikar skoruðu á 69. mínútu gegn gangi leiksins. Keflvíkingar svöruðu með marki sjö mínútum síðar. Eiður Orri Ragnarsson skoraði gott mark eftir sendingu frá Alpha Conteh. Keflavík hélt áfram að sækja en heimamenn áttu hættulegar skyndisóknir. Eftir slæm mistök í vörn Keflavíkur skoruðu Blikar þriðja mark sitt í uppbótartíma á 91. mínútu og innsigluðu 3-1 sigur.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Keflavík hefði með smá heppni getað fengið stig út úr þessum leik. Liðið átti 22 skot að marki Blika á móti aðeins 13 en það vantaði að hitta ramman oftar. 

Keflavík er í 6. sæti og hefur aðeins fengið eitt stig úr þremur leikjum í úrslitakeppni efri hlutans. Liðið mætir KR á heimavelli næsta laugardag og svo er síðasti leikurinn gegn ÍA á útivelli viku síðar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn