Keflavík lagði Ármann í Laugardalshöll
Keflavík byrjaði tímabilið í Bónus-deild karla af krafti og vann 108-90 sigur á Ármanni í Laugardalshöll í kvöld. Keflvíkingar lögðu grunninn að sigrinum með frábærum þriðja leikhluta sem þeir unnu 33-15.
Keflvíkingar byrjuðu betur og leiddu 31-23 eftir fyrsta leikhluta. Ármann svaraði vel í öðrum leikhluta og skoraði 29 stig, en Keflavík hélt átta stiga forskoti í hálfleik, 62-52.
Eftir hlé tóku Keflvíkingar öll völd. Þeir unnu þriðja leikhlutann 33-15 og fóru með 28 stiga forskot, 95-67, inn í lokaleikhlutann. Ármann vann fjórða leikhlutann 23-13 og náði að laga stöðuna á lokakaflanum, en sigur Keflavíkur var aldrei í hættu. Lokatölur urðu 108-90.
Jamir Chaplin var stigahæstur Keflvíkinga með 28 stig og sjö fráköst. Hilmar Pétursson átti einnig mjög góðan leik með 19 stig, sex fráköst og fimm stoðsendingar.
Grindvíkingurinn Bragi Guðmundsson sem gekk til liðs við Keflvíkinga fyrir þetta tímabil en hann lék með Ármanni í fyrra, skoraði 16 stig, tók níu fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Jaka Brodnik skoraði einnig 16 stig auk þess að taka fimm fráköst. Frosti Sigurðarson og Robertas Jonaitis bættu við átta stigum hvor.
Hjá Ármanni var Ingvi Þór Guðmundsson, bróðir Braga, stigahæstur með 15 stig, sex fráköst og fimm stoðsendingar. Adam Johansson skoraði 13 stig, Arnaldur Grímsson 12 og Zarko Jukic 11.
Ármann-Keflavík 90-108 (23-31, 29-31, 15-33, 23-13)
Ármann: Ingvi Þór Guðmundsson 15/6 fráköst/5 stoðsendingar, Adam Johansson 13, Arnaldur Grímsson 12, Zarko Jukic 11, Styrmir Jónasson 9, Kinyon Hodges 7/4 fráköst, Jakob Leifur Kristbjarnarson 6, Jóel Fannar Jónsson 6, Oliver Bieshaar 6/6 fráköst, Ísak Örn Baldursson 5, Magnús Engill Valgeirsson 0/4 fráköst, Kári Kaldal 0.
Keflavík: Jamir Chaplin 28/7 fráköst, Hilmar Pétursson 19/6 fráköst/5 stoðsendingar, Bragi Guðmundsson 16/9 fráköst/7 stoðsendingar, Jaka Brodnik 16/5 fráköst, Frosti Sigurðarson 8, Robertas Jonaitis 8/6 fráköst, Eyþór Lár Bárðarson 7, Ólafur Björn Gunnlaugsson 6, Viktor Magni Sigurðsson 0, Daniel Eric Ottesen Clarke 0, Jökull Ólafsson 0, Jakob Máni Magnússon 0.








